157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

[11:31]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Frú forseti. Ég vil í upphafi þakka hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir að óska eftir þessari sérstöku umræðu um skýrslu greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi hér á landi. Sömuleiðis þakka ég hæstv. dómsmálaráðherra, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, fyrir hennar ræðu og veittar upplýsingar, einnig fyrir þá ágætu umræðu sem hér hefur farið fram.

Frú forseti. Ef við reynum að skilgreina sérstaklega með einu orði hvað drífi skipulagða brotastarfsemi þá er það það að hún er hagnaðardrifin, enda er það grunnstefið í ákvæði almennra hegningarlaga um skipulagða brotahópa þar sem tiltekið er að vísað sé til félagsskapar sem hafi að meginmarkmiði, í ávinningsskyni, að fremja refsiverðan verknað með skipulögðum hætti. Enda er það svo, frú forseti, að allar stofnanir sem með einum eða öðrum hætti fjalla um þessi mál leggja áherslu á endurheimt ávinnings í brotastarfsemi og með þeim hætti sé helst hægt að sporna við starfsemi brotahópa. Nægir þar að nefna í þessu sambandi löggæslu- og ákæruvaldsstofnanirnar Interpol, Europol og Eurojust og einnig alþjóðlega vinnuhópinn FATF gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Með þetta í huga vakti það athygli mína að hluti þingflokks málshefjanda, Miðflokksins, treysti sér ekki til að styðja frumvarp hæstv. dómsmálaráðherra í nóvember síðastliðnum um breytingu á lögum um meðferð sakamála er varðaði upptöku fjárhagslegs ágóða af brotum og fleira. Það er mikilvægt að það sé stuðningur hér í þinginu við að ná tökum á þessum málum, hvort tveggja í orði og á borði, og vísast þá í afmörkun þessarar sérstöku umræðu.

Frú forseti. Önnur afmörkun umræðunnar varðaði hryðjuverkamenn hér á landi með sérstakri skírskotun til máls sem kom upp hér á landi fyrir nokkrum misserum. Spurt er m.a. um úrræði sem stjórnvöld hafi til að staðsetja hér á landi menn sem hafa tengsl við hryðjuverkasamtök og koma þeim úr landi. Í þessu sambandi skiptir meginmáli að íslensk lögregluyfirvöld hafi góð sambönd við erlend lögreglulið og löggæslustofnanir og greiningargetu á upplýsingum. Þá skiptir og máli að þeir sem hingað leita séu skimaðir með tilliti til áhættu af því að þeir tengist hryðjuverkahópum. Sem sagt: Við þurfum að eiga erlent samstarf, afla viðeigandi upplýsinga og hafa getu til að greina þær.