157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.

[11:34]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það má segja að það hafi verið ákveðin þöggun á þessum vettvangi, skilningur þingsins hafi um langt skeið ekki verið fyrir hendi. Það hryggir mig að það eina sem við heyrum frá fulltrúum hæstv. ríkisstjórnarinnar, frá hæstv. ráðherra, sé að verið sé að vinna að nýrri stefnu. Það er verið að endurmeta. Það er verið að skoða aðgerðir. Það er verið að búa til aðgerðapakka.Lögreglan hefur það alveg á hreinu hver þurfi að vera næstu skref. Það þarf ekkert að fara í einhverja frekari skýrslugjöf eða einhverjar safnanir út úr því, það liggur alveg fyrir. Það kom líka á óvart að hæstv. ráðherra, sem ásamt forsætisráðherra hefur ítrekað fullyrt hér í þingsal að það hafi verið fjölgað um 50 stöðugildi hjá lögreglunni á síðasta ári, var ekki alveg viss á því hvar þessi störf væru, hjá hvaða lögregluembættum, hversu mörg hefðu raungerst. Innan lögreglunnar heyrast þær raddir að það hafi ekki raungerst af því að það hafi ekki verið gert ráð fyrir rekstrarkostnaðinum sem þessu fylgdi. Það er mjög dapurt vegna þess að það er það sem þarf að gera.

Hæstv. ráðherra hefur nú gefið það í skyn hér í umræðu um þessi mál á undanförnum misserum, á síðasta ári, að lítið hafi verið gert í lögreglumálum. Þá getur maður farið aðeins yfir það að við breyttum lögreglulögum til að auka heimildir lögreglu. Við fjölguðum um 70–80 stöður raunverulega. Við kynntum á hvaða embætti þær fóru. Við kynntum það með stórri auglýsingu hvaða embætti voru að auglýsa eftir mönnum í þessi störf. Við komum á samkomulagi milli allra lögreglustjóra í landinu um að samnýta mannskap. Tímamótasamkomulag. Við settum fulltrúa hjá Eurojust. Við margfölduðum í fjölda teyma sem eru að vinna að rannsókn og saksókn í skipulagðri brotastarfsemi.

Það er þetta sem þarf að gera, virðulegur forseti. Það er ekki flókið. Það þarf að fylgja þessum skrefum eftir, þessum stóru, öflugu skrefum sem voru stigin á síðasta kjörtímabili. (Forseti hringir.) Það þarf að fylgja þeim eftir. Málið er ekki flóknara en það. Það þarf ekki að gera það með þessari innihaldslausu upptalningu (Forseti hringir.) sem hæstv. ráðherra og þingmenn stjórnarflokkanna hafa farið hér með í þessari umræðu.