Skýrsla greiningardeildar ríkislögreglustjóra um skipulagða brotastarfsemi á Íslandi.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar svör og þeim þingmönnum sem hafa tekið þátt í umræðunni, sem hefur verið gagnleg, held ég, og áhugaverð. Ég vil einnig minna hæstv. ráðherra á 3. lið spurningarinnar sem ég held að hún hafi ekki komið neitt að, þ.e. þetta með að fyrir tveimur árum síðan var manni sem var talinn virkur meðlimur í hryðjuverkasamtökum vísað úr landi. Ég spurði hæstv. ráðherra að því hvort hér gæti verið að finna fleiri slíka menn hér á landi sem hafa tengsl við hryðjuverkasamtök. Hvaða úrræði hafa stjórnvöld til að staðsetja þessa menn og senda úr landi? Og til hvaða ráðstafana hafa stjórnvöld gripið til að koma í veg fyrir að slíkir aðilar komist inn í landið, sem er náttúrlega grundvallaratriði?
Ég vil einnig nefna að það er auðvitað víðtækur pólitískur stuðningur við allar aðgerðir sem ganga í þá átt að efla lögregluna og koma í veg fyrir starfsemi brotahópa. Það hefur margoft komið fram hér á þingi og ég held að hæstv. ráðherra sé alveg óhætt að láta af þessum pirringi sínum gagnvart Miðflokknum alltaf hreint þegar þetta kemur til umræðu og snúa sér að verkefnunum, snúa sér að því sem er fyrir framan okkur. Það var auðvitað fagnaðarefni, frú forseti, hér fyrir stuttu síðan þegar við samþykktum frumvarp hæstv. ráðherra mótatkvæðalaust um afturköllun alþjóðlegrar verndar. En þannig stendur á að unnt er að fá úr því skorið strax hversu vel þau lög virka og það mun sjást á því hversu fljótt maðurinn, sem hafði í hótunum við vararíkissaksóknara og varð uppvís að fjölmörgum öðrum brotum, verður sendur úr landi. Það mun koma í ljós. Og maðurinn sem hékk hér á þingpöllunum og vanvirti hv. Alþingi, hversu fljótt verður hann sendur úr landi?