fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Herra forseti. Nú eru liðnir þrír tímar síðan fulltrúar stjórnarandstöðunnar í atvinnuveganefnd óskuðu eftir fundi með forseta Alþingis ásamt þingflokksformönnum stjórnarandstöðuflokkanna. Það sem um var rætt og samið hér á fyrri stigum sem grundvallaði þá takmörkuðu umræðu sem átti sér stað hér í gær var að leidd yrðu fram svör við tilteknum spurningum. Þar sem nú liggur fyrir er að atvinnuvegaráðuneytið baðst undan því að svara tilteknum spurningum sem þar voru settar fram. Því hlýtur virðulegur forseti að vilja eiga við okkur orðastað til að þetta geti klárast í einhverri sátt í gegnum 2. umræðu, þetta mál sem er hér til umræðu og er umdeilt. Enn á eftir að reyna á hvort gestakomum, þegar málið gengur til nefndar milli 2. og 3. umræðu, verður hafnað með formlegum hætti en öll merki nú um stundir benda til þess að svo verði. (Forseti hringir.) Meðferð meiri hluta atvinnuveganefndar og núna, ef fram heldur sem horfir, forseta Alþingis á þessu máli er með þeim hætti (Forseti hringir.) að okkur er varla stætt á því að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist.