fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að taka undir með félögum mínum í stjórnarandstöðunni og þá sérstaklega félögum mínum í minni hluta atvinnuveganefndar. Eins og fram hefur komið eru liðnir þrír klukkutímar frá því að við sendum ósk til forseta þingsins þess efnis að funda með okkur. Það er mjög mikilvægt að áður en lengra verður haldið þá reynum við að leiða ákveðna hluti í jörð, svör varðandi spurningar og annað. Vissulega er stefnt á að málið komi inn á milli umræðna að lokinni atkvæðagreiðslu en það er líka mjög mikilvægt að það liggi fyrir, áður en við förum í atkvæðagreiðslu og klárum hana, að fulltrúi ráðuneytisins komi og fylgi eftir þeim svörum sem við fengum send seint í gærkvöldi. Við þurfum að fá útskýringar á því, nefndin í heild sinni þarf að fá útskýringar á því sem þar stendur (Forseti hringir.) og hvað ráðuneytið meinar með þeim svörum sem við fengum í gær því það er hægt að túlka svörin á ýmsan hátt.