157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:08]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf):

Herra forseti. Það er umhugsunarvert að þegar verið er að ræða hér sjávarútvegsmál þá er iðulega gripið til þess, hvort sem verið er að ræða örlitla breytingu á veiðistjórn grásleppu, sem er vel að merkja innan ráðgjafar Hafró og allt það, eða annað þá er alltaf allt fordæmalaust. Það virðist eiginlega komið fordæmi fyrir því að þegar rætt er hér um sameign þjóðarinnar þá virðist það vera alveg fordæmalaust. Sú afgreiðsla og vinna sem hefur átt sér stað í hv. atvinnuveganefnd er einfaldlega lýðræðisleg og góð vinnubrögð og ég vil hrósa hv. formanni Lilju Rafneyju Magnúsdóttur fyrir þau vinnubrögð. Það eru mikil átök í þessu máli, pólitísk átök sem snúast um viðhorf til sameignarinnar. Við í meiri hlutanum erum alveg á því að þessi breyting undirstriki markmið laganna en minni hlutinn er ósammála því. Um það snýst málið. (Forseti hringir.) Ég hafna því alfarið að það sé eitthvað slæmt eða fordæmalaust í þeim vinnubrögðum.