157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:10]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Það var beinlínis undarlegt að hlusta hér á hv. þm. Sigurjón Þórðarson afflytja það sem hefur átt sér stað í atvinnuveganefndinni. Málið er nefnilega orðið marglaga og eitt af því sem við þurfum að ræða áður en kemur að efnislegri umræðu — og guð minn góður, nóg verður af henni — er málsmeðferð atvinnuveganefndar sem fer býsna nærri því, tel ég víst, að vera fordæmalaus. En það verður líka að halda til haga öðru atriði. Á fundi nefndarinnar í morgun var óskað eftir því að atvinnuvegaráðherra kæmi á fund nefndarinnar til að fara yfir þau svör sem ráðherrann veitti nefndinni í gærkvöldi. Þar liggur fyrir að veiðar munu stöðvast að þessu máli samþykktu, eins og markmiðið virðist vera í dag. Veiðar munu stöðvast. Það er ekki byrjaður neinn undirbúningur að því að vinna samkvæmt því frumvarpi sem hér liggur fyrir. Þannig að þetta er allt einhver galskapur sem er að teiknast hérna upp. Það að halda að málið varði eingöngu efnisatriði núorðið er á misskilningi byggt hjá hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni. (Forseti hringir.) Og hvað varðar meðferð atvinnuveganefndar: Enn hafa engin svör borist við því að hæstv. ráðherra mæti fyrir nefndina og fari yfir svör við þeim fjórum spurningum sem var beint til ráðuneytisins í gær þar sem tveimur spurningum,(Forseti hringir.) tveimur og hálfri ef sanngjarnt er talið, var svarað, einni og hálfri ekki. Þau efnislegu svör sem komu fram kalla fram nauðsyn þess (Forseti hringir.) að ráðherra mæti fyrir nefndina og eftir því hefur verið óskað að sá fundur verði opinn.