157. löggjafarþing — 74. fundur, 19. feb. 2026.
fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Herra forseti. Vorið 2025 var með eindæmum gott veðurfarslega. Fundarstjórn og meðhöndlum mála í nefndum voru það hins vegar ekki. Því er eðlilegt að spyrja nú hvort þingvorið 2025 sé að teiknast upp að nýju. Forsetaúrskurður varðandi 62. gr. þingskapalaga veldur áhyggjum sem og hvernig farið var með samkomulag milli meiri og minni hluta varðandi það hvernig og á hvaða forsendum 2. umræða um grásleppuna myndi ljúka. Þar, herra forseti, stóð minni hlutinn við sitt.