fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.
Herra forseti. Hér er verið að setja út á vinnubrögð og málsmeðferð. Hér á dagskrá, þingmannafrumvarp en ekki stjórnarfrumvarp. Ég tek undir þær kröfur sem hér hafa verið lagðar fram um að hæstv. atvinnuvegaráðherra mæti í þingsal og taki þátt í þessari umræðu. Hér er verið að tala um að kollvarpa aflamarkskerfinu og að ráðherrann skuli ekki vera hér í þingsal, það er skandall. Hvaða tegund verður það næst sem verður kippt út úr kerfinu? Þjónkun og þögn Viðreisnar og Samfylkingar við Flokk fólksins eru greinilega engin takmörk sett í þessu. Það eru dýrkeypt aðildaráform Viðreisnar og Samfylkingar að Evrópusambandinu og hæstv. forseti Alþingis spilar með. Þetta er ömurlegt. Þetta er fullkomlega ömurlegt og ég krefst þess, (Forseti hringir.) og tek undir orð annarra, að hæstv. ráðherra atvinnuvegamála mæti í þingsal og taki þátt.