157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:22]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S):

Virðulegi forseti. Þá byrjar þessi hringekja eina ferðina enn. Ef rennt er í gegnum stjórnarsáttmálann sér maður fljótlega að þar er ekkert grásleppufrumvarp. Þar er ekki samkomulag um neina grásleppu. Þar var hins vegar samkomulag um strandveiðar. Er þetta gjaldið sem Viðreisn og Samfylking þurfa að greiða fyrir það að koma ekki strandveiðunum í gegn? Er það þetta gjald? Er það þess vegna sem við sjáum hér fulltrúa Viðreisnar af landsbyggðinni, fulltrúa Samfylkingarinnar af landsbyggðinni, sitja hér hljóð og mæta ekki hér í pontu til þess a.m.k. að skýra þá afstöðu sína til þess af hverju þeir eru að samþykkja þetta frumvarp?

Ég held að við þingmenn í stjórnarandstöðunni eigum bara hreinlega rétt á því að heyra í þessu fólki hér úr pontu og það sýni okkur nákvæmlega og segi okkur af hverju það er að styðja þetta arfaslaka frumvarp.