157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:30]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Í sambandi við fundarstjórn forseta þá tek ég undir það sem hv. þingmenn hafa vikið að. Það eru auðvitað ekki alveg ásættanleg vinnubrögð gagnvart minni hluta að hér sé látið eins og farvegur málsins sé allur hinn eðlilegasti þegar sannarlega er verið að bera fram þingmannamál um mikið grundvallarmál og eðlilegt að vinnubrögð nefndarinnar taki mið af því og fari þá almennilega út í þau atriði sem menn eru að víkja að. En menn þverskallast við að gera það ekki, neita mönnum um þetta sjálfsagða álit og þegar kemur að því að ræða málið þá láta hæstv. ráðherrar ríkisstjórnar ekki svo lítið að taka þátt í umræðunni eða að gera grein fyrir sínum sjónarmiðum gagnvart þessu þingmannamáli. Allt er það því hið undarlegasta mál. Einnig þetta sem menn eru að víkja hér að, að það sé raunverulega ekki hægt að vinna betur með minni hlutanum að því að koma málinu bara í heilbrigðari farveg sem menn eru aðeins sáttari við en það að þvinga þetta fram með þessum hætti.