157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

fundur með forseta vegna frumvarps um veiðistjórn grásleppu.

[13:33]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Herra forseti. Ég verð nú að segja að ég sakna mjög nærveru hæstv. atvinnuvegaráðherra hér í þingsal í dag. Ég beið nefnilega mjög spennt eftir því hvernig hún myndi greiða atkvæði því að hún gat ekki svarað því til hér í óundirbúnum fyrirspurnatíma fyrir einhverju síðan, sagði að afstaða hennar myndi liggja fyrir í atkvæðagreiðslu. Mér finnst það sérstaklega áhugavert vegna þess að þegar ég les þingferil málsins þá sé ég ekki betur en að núverandi hæstv. ráðherra hafi verið flutningsmaður þess máls sem varð að lögum og nú á að breyta. Þannig að, virðulegur forseti, ég á mjög erfitt með að skilja hvað þingflokkur Viðreisnar, hvað ráðherra málaflokksins vill í þessu máli og sérstaklega þegar bent er á að hér hafa þingmenn Viðreisnar ekkert komið upp og útskýrt afstöðu sína til þessa máls.

Svo ætla ég að segja það, herra forseti, því að ég er mjög mikið fyrir að þingmannamál fái framgang, að það þarf líka að vanda til verka. Ég man eftir því að hafa afgreitt hér í gegnum þingið þingmannamál, sem var reyndar frá þingflokki Viðreisnar, mjög gott mál. Við þurftum að hafa sérstaklega fyrir því að fá ráðuneytið til að segja sína skoðun á því máli og kalla eftir þeim sjónarmiðum (Forseti hringir.) og það þurfti að gera umtalsverðar breytingar á málinu. Það sem við eigum að gera hér er að vanda lagasetningu og mér sýnist því miður við vera að falla á öllum skrefum hvað vandaða lagasetningu varðar í því frumvarpi sem á að greiða atkvæði um eftir nokkrar mínútur.