157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[15:25]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf):

Herra forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um breytingu á lögum um grunnskóla, nr. 91/2008 (símar og snjalltæki). Með frumvarpinu er lagt til að mennta- og barnamálaráðherra fái skýrar heimildir til að kveða á um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum og í frístundastarfi með það að markmiði að samræma reglur í grunnskólum, búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styður við farsælt nám þeirra og vellíðan og stuðla um leið að ábyrgari nethegðun og öruggari stafrænum samskiptum.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega: Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að styrkja lagagrundvöll og veita skýrari lagastoð fyrir að setja reglugerð um notkun síma og snjalltækja í skóla- og frístundastarfi. Fjallað var um útfærslu og efni fyrirhugaðrar reglugerðar og einnig bentu umsagnaraðilar á aðrar færar leiðir, svo sem hvort Miðstöð menntunar og skólaþjónustu ætti að útbúa leiðbeiningar um símareglur fyrir grunnskóla í samráði við skólasamfélagið, þar á meðal nemendur, líkt og gert hefur verið í Noregi. Einnig var bent á hvort betra væri að mæla fyrir um notkun síma og snjalltækja í skólareglum, sbr. 3. mgr. 30. gr. laganna, í stað þess að útfæra reglurnar með reglugerð. Meiri hlutinn hefur skilning á þessum sjónarmiðum en telur mikilvægt að settar verði skýrar og samræmdar reglur sem myndi ákveðinn ramma um það hvernig eigi að fara með síma og snjalltæki í skólastarfi. Það þarf að gæta að því að um verði að ræða raunhæfar reglur sem hægt verði að fylgja eftir í framkvæmd.

Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu um að með því sé lagt til að ráðherra fái skýrar heimildir til að kveða á um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum og frístundastarfi með það m.a. að markmiði að samræma reglur í grunnskólum, búa nemendum náms- og félagsumhverfi sem styðji við farsælt nám þeirra og vellíðan og stuðla um leið að ábyrgri nethegðun og öruggari stafrænum samskiptum.

Þá fjallaði nefndin um samráð við nemendur og skóla. Umsagnaraðilar undirstrikuðu mikilvægi samráðs við skólasamfélagið, nemendur sjálfa og aðra hagaðila við útfærslu reglugerðarinnar. Í umsögn frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga er áréttað að fjölmargir skólar hafi nú þegar útfært reglur um notkun síma og snjalltækja í skólastarfi og því sé mikilvægt að vera í góðu samstarfi við sveitarfélögin um útfærslu samræmdra reglna, sérstaklega til að nýta þá þekkingu og reynslu sem fyrir er. Þau ítrekuðu einnig ábyrgð sveitarfélaga og skólastjórnenda samkvæmt lögum um grunnskóla. Meiri hlutinn telur brýnt að við útfærslu reglugerðarinnar verði haft samráð við skólasamfélagið, einkum börn og ungmenni. Þá er mikilvægt að byggt verði á þeirri vinnu sem hefur þegar átt sér stað í mörgum grunnskólum sem hafa sett sér reglur eða viðmið um notkun farsíma, jafnvel í náinni samvinnu við nemendur í viðkomandi skóla.

Við umfjöllun nefndarinnar komu fulltrúar frá Ungheillum, ungmennaráði Barnaheilla, á fund nefndarinnar. Þau skiluðu jafnframt umsögn um málið. Fram komu mikilvæg sjónarmið um afstöðu barna og ungmenna til málsins. Meiri hlutinn undirstrikar mikilvægi þess að tryggja að nemendur fái að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við áframhaldandi vinnslu innan ráðuneytis í samræmi við 12. gr. barnasáttmálans sem kveður á um rétt barna til að láta í ljós skoðanir sínar á öllum málum er varða þau og að tekið sé réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur og þroska. Mikilvægt er við innleiðingu barnasáttmálans að tryggja að hann sé hafður að leiðarljósi við alla stefnumótun, lagasetningu og ákvarðanatöku sem varðar börn.

Nefndin fjallaði að auki um undanþágur frá takmörkun við notkun síma og snjalltækja í skólum. Landssamtökin Þroskahjálp benda á að reglur um símanotkun og snjalltæki verði að taka mið af ólíkum þörfum barna, þar með talið fatlaðra barna sem kunna að reiða sig á tæki til samskipta, skipulags eða náms, en stafrænt umhverfi getur verið mikilvægt fyrir fjölda barna sem eru jaðarsett af ólíkum ástæðum. Því verður að tryggja að reglur um síma og snjalltæki í skólum leiði ekki til frekari jaðarsetningar fatlaðra barna með skýrum undanþágum fyrir börn sem nýta tæki vegna fötlunar.

Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að reglunum er ekki ætlað að banna eða útiloka notkun tækninnar heldur er markmið þeirra að tryggja jafnræði milli skóla, styrkja skólastjórnendur og faglegt skóla- og frístundastarf og stuðla að öruggu skólaumhverfi þar sem börn geta einbeitt sér að námi, þroskast og styrkt félagsleg samskipti. Gert er ráð fyrir að ráðherra útfæri þær undanþágur sem eru heimilaðar og í hvaða tilgangi til að koma til móts við sérþarfir nemenda. Meiri hlutinn telur ljóst að huga þurfi vandlega að því að tryggja ákveðinn sveigjanleika og að undanþágur verði útfærðar til að koma til móts við ýmsar sérþarfir nemenda. Fleiri sjónarmið kunna að koma til skoðunar, svo sem hvort útfæra eigi reglurnar með hliðsjón af aldri nemenda en bent var á að símabann á skólatíma megi ekki draga úr áherslu stjórnvalda á aðgerðir til að fræða öll börn, foreldra og kennara um ábyrga og örugga umgengni við snjalltæki og netið.

Fram kom í umsögn að öryggi barna verði ekki tryggt með boðum og bönnum heldur þurfi að kenna börnum að umgangast netið og samfélagsmiðla, styðja við eftirlitshlutverk foreldra og efla fræðslu og forvarnir. Í greinargerð með frumvarpinu er vísað til þess að samhliða umfjöllun um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum hafi verið ákall um fræðslu og forvarnir um viðeigandi og örugga notkun. Þá hafa embætti landlæknis, umboðsmaður barna, Barnaheill, heilsugæslan, Heimili og skóli og SAFT gefið út aldursbundin viðmið um skjánotkun barna og ungmenna, þar með talið á samfélagsmiðlum, til stuðnings foreldrum við að stuðla að jákvæðri og uppbyggilegri umgengni við tækni, tölvur og snjalltæki. Meiri hlutinn tekur undir það og telur það grundvallarforsendu fyrir því að tryggja heilbrigða og örugga notkun barna og ungmenna á símum og snjalltækjum að auka fræðslu og forvarnir. Einnig þurfi að eiga sér stað nánari stefnumótun hvað varðar aðgengi barna að samfélagsmiðlum og hvernig megi umgangast tæknina á öruggan hátt.

Meiri hlutinn telur mikilvægt að það verði skoðað nánar hver skuli bera ábyrgð á aukinni fræðslu, einkum fyrir foreldra og forsjáraðila, en ýmsir aðilar hafa gefið út viðmið, haldið námskeið og veitt fræðslu. Skv. 1. mgr. 9. gr. laga um grunnskóla skulu foreldrafélög starfa við grunnskólann sem hafa m.a. það hlutverk að stuðla að velferð og farsæld nemenda og efla tengsl milli heimila og skóla. Meiri hlutinn telur ljóst að um sé að ræða verkefni sem byggist ávallt á samvinnu heimila og skóla auk þess að snerta ýmis svið og marga aðila.

Í mennta- og barnamálaráðuneyti stendur nú yfir vinna þar sem aldurstakmörk barna á samfélagsmiðlum eru til skoðunar. Þar er einnig horft til aukinnar fræðslu fyrir foreldra og útfærslu á slíkri fræðslu en til greina kemur að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu haldi miðlægt utan um hana. Meiri hlutinn tekur undir mikilvægi þeirrar vinnu sem og að skoðað verði hvort fela megi Miðstöð menntunar og skólaþjónustu hlutverk hvað varðar aukna fræðslu.

Ef vikið er að breytingum: Meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar leggur til eina tæknilega breytingu á frumvarpinu. Lagt er til að orðalagi í 1. gr. verði breytt til samræmis við ákvæðið líkt og það lá fyrir í frumvarpinu eins og það birtist í samráðsgátt stjórnvalda. Telur meiri hlutinn skýrara að útfæra ákvæðið svo að við 4. mgr. 30. gr. laganna bætist nýr málsliður sem kveði á um að í reglugerð verði ráðherra heimilt að kveða nánar á um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Vísast að öðru leyti til ítarlegrar umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Undir nefndarálit meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Grímur Grímsson, Guðmundur Ari Sigurjónsson og Sandra Sigurðardóttir.

Herra forseti. Ég hef lokið máli mínu.