157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[15:37]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Mér er ljúft og skylt að reyna að svara þessum spurningum eins og ég get. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir er nú mun reyndari þingmaður en sú sem hér stendur og kann að vita jafnvel sum svörin betur en ég en við skulum sjá til. Fyrst er því til að svara að við höfum ekki fengið drög að reglugerð, svo það sé sagt. Eins og fram kom í greinargerð og framsögunni er hér ekki um bann að ræða en upphaflega var talað meira um símafrí þegar fyrst var rætt um þetta mál sem er nú orðið nokkuð síðan og síðan þá hafa flestir skólar sett sér einhvers konar reglur. Ég hef ekki upplýsingar um það hvort reglugerðin verði birt þegar hún verður tilbúin og það er heldur engin dagsetning komin á hvenær reglugerðin verði birt. Ég man ekki alveg síðustu spurninguna en hún var samt í sambandi við reglugerðina. Síðan kemur að því sem ég er kannski óörugg með, hvernig venjan er hér á þingi, hvort að fljótlega eftir að búið er að samþykkja breytingar á lögum um að gerðar verði reglugerðir séu þær birtar þegar þær eru tilbúnar eða fari í samráðsgátt að öllu jöfnu. Kannski er allur gangur á því en samt einhvers konar hefð í því sambandi. Hv. þingmaður, eins og ég segi, veit það kannski betur en ég. En ég er að verða búin með tímann. Ég fæ kannski að koma aðeins að því í næsta svari út á hvað ég held og veit að þessi reglugerð mun ganga, hver yfirmarkmiðin eru og yfirskriftirnar á köflum þessarar reglugerðar.