157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[15:39]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér þykir miður að nefndin hafi ekki fengið að sjá drög að þessari reglugerð vegna þess að þetta frumvarp sem við erum með hér til umfjöllunar ber mjög lítið með sér. Sumir hafa meira að segja fært rök fyrir því að það sé ekki þörf á þessu frumvarpi. Ég meina, það eina sem stendur í frumvarpinu er að það bætist inn í reglugerðarheimildir ráðherra að það megi setja reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum og svo líka í frístundastarfi. Skólar mega setja sér skólareglur, það er reglugerðarheimild fyrir því og öðru þannig að ég benti á það hér við 1. umræðu að ég héldi að það væri gagnlegra fyrir nefndina, svo við vissum kannski hvað við værum svolítið að tala um hérna, að ráðuneytið myndi bara senda drög að reglugerð því það er stundum gert í þingstörfum ef nefndir kalla eftir því og telja þörf fyrir það.

Ég spurði sérstaklega um það hvort reglugerðin myndi fara í samráð vegna þess að ég minnist þess hér þegar hæstv. ráðherra mælti fyrir málinu að hann lagði mjög mikið upp úr samráði. Hann lagði mjög mikið upp úr samráði við ungmenni, hagsmunasamtök og við skólafólkið allt saman þannig að ég átti jafnvel von á annarri hringferð ráðherrans í þetta skiptið í alla grunnskóla landsins til að ræða mögulega reglugerð um einhvers konar símabann eða símafrí eða eitthvað þess háttar. Það er kannski ástæðan fyrir því að ég spyr hérna því að ég átta mig ekki enn þá alveg á því hverju þessi lög munu raunverulega breyta því eins og hv. þingmaður kom inn á eru nánast allir, ef ekki allir, skólar landsins með einhverjar reglur og mörg sveitarfélög hafa sett sér samræmdar reglur eða samræmt verklag. Nú síðast kom í fréttum um þann sáttmála sem gerður hefur verið í Kópavogi um símafrí í grunnskólunum.

Mig langar að spyrja líka hv. þingmann: Var eitthvað rætt í nefndinni hvort það væri jafnvel brýnni þörf, í ljósi þess að framhaldsskólinn er nú á herðum hæstv. ráðherra, að velta fyrir sér slíkum reglum eða reglugerðarheimildum fyrir framhaldsskólana?