157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[15:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir seinna andsvar og fyrir það fyrra líka. Þessi reglugerð mun kveða nánar á um undanþágur, sem dæmi. Hún mun líka taka á samræmingarmálum. Nú hef ég ekki séð allar reglurnar í öllum þeim skólum sem til eru, en ég leyfi mér að gruna að þær séu ansi ólíkar, þannig að samræming er klárlega liður í þessari reglugerð. Reglugerðin mun einnig taka á lágmarksviðmiðum og leiðbeiningar munu alveg örugglega vera kafli í reglugerðinni, að tryggja jafnræði og tryggja sveigjanleika. Þetta eru kannski höfuðþættirnir sem reglugerðin mun fjalla um og síðan eitthvað meira. Ég geri náttúrlega ráð fyrir að inni í ráðuneytinu séu sérfræðingar sem eru án efa búnir að liggja yfir þeim reglum sem nú þegar eru í gangi í öllum þessum skólum, sem eru fjölmargir. Ef það eru ekki allir skólar þá er það alla vega nálægt því að vera allir skólar.

Síðan, eins og kom fram í framsögunni og kemur fram í frumvarpinu, er til skoðunar hvernig þetta verður með samfélagsmiðlana. Eins og við þekkjum eru sum lönd búin að setja aldurstakmörk og viðmið á samfélagsmiðlanotkun barna. Það var ekki, nú þarf ég kannski bara að fá að leita til kollega míns í allsherjar- og menntamálanefnd, hvort hann muni það kannski frekar, hv. þm. Jón Pétur Zimsen, hvort við ræddum framhaldsskólana. Ég held ekki, ég get kannski bara sagt það strax hér. En ég held að við getum bara verið róleg og að það sé ágætisrammi utan um þessa reglugerð, þó að við höfum ekki séð nákvæmlega hvernig hún verður útfærð eða hvernig hún verður orðuð. Við getum líka treyst því að sérfræðingar í ráðuneytinu muni taka vel á þessum málum.

Rétt að lokum um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Það er hugsanlegt að fræðsluþátturinn verði meira miðlægur. Það mun líklega verða rætt í tengslum við fræðsluna, hver beri ábyrgð á fræðslunni. Við ræddum það heilmikið í nefndinni og fengum ýmsar upplýsingar frá gestum um fræðsluþáttinn.