157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta allsh.- og menntmn. (Jón Pétur Zimsen) (S):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. framsögumanni hennar yfirferð hér um að mörgu leyti ágætismál sem þeim sem hér stendur þykir tímabært. Eins og kom fram hér í orðaskiptum hv. þm. Bryndísar Haraldsdóttur og hv. þm. Kolbrúnar Áslaugar Baldursdóttur þá er í nefndaráliti meiri hlutans ekki mikill rammi eða beint innihald. Það er í raun ávísun á að framkvæmdarvaldið geti útbúið heimild til að gera síðan eitthvað. Þannig að vera hér á takkanum seinna, eftir 3. umræðu, verður svolítið auður tékki sem menn bara ýta á og segja já eða eftir atvikum nei. Í þessu nefndaráliti, breytingartillögu minni hlutans, höfum við farið töluvert dýpra í málið og sett enn skýrari ramma til þess að byggja reglugerðina á. Við lítum svo á að við séum löggjafinn og að við eigum að bera ábyrgð á því sem birtist síðan, alla vega að einhverju leyti, í reglugerðinni. En miðað við það sem kemur fram í meirihlutaálitinu er þetta, eins og ég segi, frekar opinn tékki.

Ég ætla aðeins að fara yfir hér nefndarálit minni hlutans. Það fyrsta sem við nefnum hér, og það verður reyndar breytingartillaga eða breyting sem við leggjum til, er heimild til að kveða á um notkun snjallsíma og snjalltækja. Hér nefnum við snjallsíma sérstaklega til að beina sjónum okkar að því sem er í símanum. Ef við tölum um síma er fókusinn á síma en það er í rauninni ekki símtækið sjálft heldur smáforritin sem eru í símanum. Ef við tölum bara um síma í lögunum finnst mér kastljósið vera aðeins skakkt því að það er vissulega ekki tækið sjálft sem veldur trufluninni heldur eru það smáforritin í snjalltækinu eða snjallsímanum. 1. minni hluti telur mikilvægt að settar séu skýrar reglur sem mynda nauðsynlegan ramma um það hvernig eigi að fara með snjallsíma og snjalltæki í skólastarfi. Hérna erum við alveg sammála meiri hlutanum. Það er alveg ljóst að Vestur-Evrópu hefur farið verulega aftur í námsárangri síðustu árin. Ótal ríki í Vestur-Evrópu hafa sett sér mjög strangar reglur um snjallsímanotkun og fleiri ríki, sem hafa náð að snúa blaðinu við hvað námsárangur varðar, hafa líka sett verulegar takmarkanir á skjánotkun almennt í skólum. Það eru þekkt kennslufræðileg vísindi að menn læra töluvert betur af blaði en skjá og Svíar eru t.d. að taka skjái mjög mikið úr skólum. Ég er ekki að leggja til hér að við tökum snjalltæki úr skólum alfarið en að menn ígrundi alla vega verulega vel til hvers menn eru að nota skjái þegar þeir eru notaðir því að skjáirnir sem slíkir dreifa oft athyglinni og taka frá því sem er verið að læra um. Það er reyndar líka þekkt. Mér finnst líka vanta aðeins í álit meiri hlutans um snjalltækin, því að það er lítið sem ekkert fjallað um snjalltæki í nefndaráliti meiri hlutans. Það er aðallega talað um síma og svo einhvers staðar farsíma þannig að ég held að það sé ágætt að skoða það, í fullri vinsemd og samráði, að sjálfsögðu.

Það var töluvert samráð við marga aðila og ég tel líka að það skipti máli að skólar, sem margir hafa sett sér reglur og gengið ágætlega hjá sumum en verr hjá öðrum, og þeir sem stunda skólana séu með í ráðum. 1. minni hluti tekur undir ábendingar umsagnaraðila um nauðsyn samráðs við nemendur og skóla. Telur 1. minni hluti brýnt að við útfærslu reglugerðarinnar verði haft samráð við allt skólasamfélagið. Og með skólasamfélagið, þá eru það líka foreldrar vegna þess að foreldrar eru náttúrlega stór partur af þessu og það er verulegt ákall úr foreldrahópnum. Mesta ákallið er úr foreldrahópnum um að það verði snjallsímafrí meðan á skólatíma stendur. Það er risastór meiri hluti foreldra sem kallar eftir því og ef sá hópur fær einhverja sterka lagastoð til að aðstoða sig í þeirri baráttu sem oft er um þessi tæki, svo maður tali bara íslensku hér í pontu, mun það alveg örugglega hjálpa foreldrunum við að skapa þá menningu að snjallsímar eigi ekki heima í skólastarfinu sem slíku en séu aftur á móti tiltækir fyrir og eftir skóla þegar mögulega þarf að nota þá í aðra þætti, eins og að greiða fyrir eitthvað eftir skóla eða mögulega á skólatíma, en að það þurfi þá að sækja símana á þar til gerðan stað til þess að nota þá í einhvers konar undantekningartilfellum.

Það er mikilvægt að það verði byggt á þeirri vinnu sem nú þegar hefur átt sér stað í ótal mörgum grunnskólum. Það eru fullt af skólum sem hafa náð miklum árangri og við eigum að nýta þá vinnu þar sem best hefur til tekist. Við verðum að átta okkur á því að það er ekki bara formið sem skiptir máli. Við verðum að átta okkur á því hvaðan sá árangur kemur því að oft er það bara mannauðurinn í skólanum, sem er misjafn, hvernig menn taka höndum saman um það að vinna með svona reglur. Þetta er svolítið þannig að keðjan er ekki sterkari en veikasti hlekkurinn og það skapast mjög fljótt órói og ójafnvægi ef það eru ekki allir samstíga í þessu. En það er auðvelt ef það er komin reglugerð og lög um þetta og þess vegna hef ég talað um, sem er kannski ólíkt mér sem hægri manni, ákveðin boð og bönn, svo maður noti bara þau orð, en í þessu tilfelli, þegar um börn er að ræða og við sjáum að mörgu leyti afleiðingarnar, þurfum við að sýna þá fullorðinslegu ábyrgð að horfast í augu við raunveruleikann.

Fyrsti minni hluti telur afar mikilvægt að í reglugerðinni komi fram að snjallsímar eigi ekki að vera innan seilingar nemenda á skólatíma en að nemendur hafi samt aðgang að geymslustað því að það er mikilvægt að menn geti nýtt símana í að greiða fyrir einhverja hluti eftir skóla eða eitthvað slíkt. En það skiptir nefnilega máli að síminn sé ekki í seilingarfjarlægð því að bara það að vita af símanum og kannski 10, 15, 100 skilaboðum í símanum skapar ákveðinn óróa. Það skapar truflun þó að síminn sé á flugstillingu ofan í tösku, það hefur líka verið sýnt. Ef ég myndi spyrja foreldra skólabarna hvort þeir kysu að barnið væri með símann á flugstillingu ofan í skólatösku eða að síminn væri á stað, í þar til gerðum skápum eða geymdur þar sem barnið kemst í símann ef nauðsyn krefur, þá held ég að lang-, langstærsti hluti foreldra myndi segja: Hann á að vera geymdur á stað þar sem barnið kemst jöfnum höndum ekki í símann vegna þess að freistingar þess að fara í símann og nota hann, fara inn á netið og senda skilaboð sem langoftast eru ekki nauðsynleg, eru bara of miklar.

Í þessu minnihlutaáliti kemur líka fram, sem okkur finnst eiga heima í textanum, að það er ákveðinn einskiptiskostnaður sem þyrfti að koma til. Það þýðir ekki að henda út í skólasamfélagið einhvers konar frumvarpi eða lögum sem taka ekki tillit til eða ávarpar alla vega að lágmarki ekki kostnað sem kann að hljótast af frumvarpinu því það er þekkt að stofnanir þurfi síðan að fara í einhvers konar kaup á einhverju. Sjálfur tel ég viskulegt að það yrðu bara gerð útboð þar sem væru keyptir þar til gerðir skápar sem væru þægilegir í uppsetningu og notkun þannig að jafnræðis yrði gætt um allt land, að það sé ekki á einum stað einhvern veginn og hinum staðnum hinsegin. Það eru ákveðin gæði fyrir nemendur að vera lausir við það að líf þeirra sé mögulega í beinni útsendingu, eins og er í ótrúlega mörgum skólum í dag, meira að segja þrátt fyrir símabann. En í þessu minnihlutaáliti er einskiptiskostnaður ávarpaður og ég tel að það séu svona ákveðin ábyrg stjórnmál að nefna hann. Líka það að nefna samræmdar geymsluaðferðir þar sem menn pæla vel í því og skoða hvað hefur gengið vel. Ég veit að á Akureyri hefur gengið vel að vera með einhvers konar skápa. Ég hef ekki séð þá sjálfur en ég held að það geti verið mjög, mjög gott.

Fyrsti minni hluti telur einnig nauðsynlegt að samhliða reglugerð um notkun snjallsíma og snjalltækja hugi sveitarfélög og skólar að aukinni afþreyingu fyrir nemendur í hléum. Þetta kom mjög skýrt fram í umsögnum, sérstaklega nemenda. Ég hef miklar áhyggjur af því að ef þetta er ekki sagt í textanum muni þetta ekki vera til staðar alls staðar, ef þessi reglugerð, sem birtist síðar, mun taka gildi. Það verður erfitt að fara af stað með eitthvað ef jarðvegurinn er ekki alveg tilbúinn. Þetta er líka jafnræði fyrir börn og ungmenni og auðvitað er þetta til á langflestum stöðum en það þyrfti að ræða um þessi mál þannig að líkur séu á því að innleiðing heppnist eins vel og mögulegt er. Þær líkur eru mun meiri ef þessi atriði eru í lagi, að börnin, nemendurnir hafi eitthvað við að vera í hléum og frímínútum og þau þjálfi sig í rauninni í því, því að í allt of mörgum tilfellum, sérstaklega í unglingadeildum, er það bara orðinn ákveðinn vandi að eiga í félagslegum samskiptum. Það er alla vega mun meiri vandi en var, ég ætla nú ekki algjörlega að mála skrattann á vegginn hér. En svo ég haldi áfram er líka æskilegt að íþróttasalir skólanna, sem eru til staðar í langflestum tilfellum, séu opnir og það kostar náttúrulega eitthvað líka. Það kostar líklegast 30 mínútur á hverjum degi í laun þess sem þar er af því að við getum ekki haft salinn opinn nema það sé einhver fullorðinn ábyrgðaraðili með í því.

Við umfjöllun nefndarinnar um málið fékk nefndin á sinn fund fulltrúa frá Ungheillum, sem er ungmennaráð Barnaheilla, sem skiluðu líka umsögn um málið sem var fín og í samtali við krakkana kom margt gott fram. Auðvitað viljum við hlusta á krakkana en það getur líka verið erfitt að vera barn og ungmenni og vera fulltrúi stórs hóps af börnum og ungmennum í landinu. Það eru kannski 50.000 grunnskólabörn og það er töluverð ábyrgð sett á svona unga einstaklinga, en þau komu þessu bara ágætlega frá sér. Þarna kom fram að menn hefðu áhyggjur af því að ánetjun á smáforritum tækjanna væri töluverð. Ég held að allir foreldrar sem eru að hlusta núna og horfa, og líka ungmennin, átti sig á því að ef þau leggja af stað heiman frá sér og snjallsíminn er ekki með þeim skapast svona ákveðin tilfinning sem gefur til kynna ákveðna ánetjun. Það er engin tilviljun því að tæknirisarnir hafa lag á því að skilyrða okkur þannig að okkur finnist símarnir vera nauðsyn, bæði börnum, ungmennum og fullorðnum, og svo erum við í raun söluvaran í þessu öllu saman.

Fyrsti minni hluti telur raunveruleika ungmenna styrkja þá skoðun að snjallsímar eigi ekki að vera innan seilingar í skólanum. Þetta er þannig mál að við þurfum að kenna á hætturnar, við þurfum að kenna hvernig internetið er því að það hverfur ekki. En þetta er það sama og með bílprófið; við látum ekki börnin byrja að keyra bílinn sex ára. Við kennum, byrjum í leikskóla að kenna umferðarreglurnar, kennum hitt og þetta og svo geta krakkarnir fengið æfingaleyfi þegar framheilinn er að einhverju leyti þroskaður til þess að fá æfingaleyfi til að keyra og svo er ökuprófið 17 ára.

Það er alltaf að koma betur og betur í ljós að áhrif snjallsímanna, og þá smáforritanna í þeim því að það eru ekki símarnir sjálfir, eru verulega mikil. Við höfum kannski aldrei lifað betri efnahagslega tíma í heiminum en kvíði, depurð og einmanaleiki hefur aldrei verið meiri. Sími Píeta-samtakanna stoppar ekki, eitthvað er í gangi. Það að geta fríað börn frá því álagi að vera stöðugt í beinni útsendingu held ég að sé mjög snjallt hjá okkur fullorðna fólkinu sem störfum hér á Alþingi.

Grunnskólinn er skyldunámsskóli, við megum ekki gleyma því. Þetta er líklega eini staðurinn, fyrir utan fangelsið, þar sem við erum skyldug til að vera. Við getum alltaf valið að vera annars staðar. Leikskóli er ekki skylda en grunnskóli er skylda. Foreldrar eiga að geta verið öruggir með það ef þeir hafa ekki áhuga á því að börn þeirra séu með snjallsíma eða í kringum snjallsíma að skólinn sé laus við þá. Það er þannig að við eigum ekki að skylda eða bjóða í raun upp á það að snjallsímar séu notaðir sem tæki í skólum vegna þess að þá erum við bara komin í bullandi mismunun. Sumir eiga ekki almennilega snjallsíma, einhverjir geta verið með snjallsíma sem kostar 250.000 en aðrir 20.000. Það er ekki hægt að gera eina einustu kröfu í grunnskólanum um að tæki sem á að nota í skólanum komi frá nemendum sjálfum, enda held ég að allir grunnskólar eigi snjalltæki sem hægt er að nota og það á að vera þannig.

Undanþágur frá takmörkunum við notkun snjallsíma og snjalltækja í skólum. Í tengslum við ábendingar í umsögnum Þroskahjálpar og Barnaheilla um að reglur um símanotkun og snjalltæki megi ekki leiða til þess að börn verði jaðarsett sem reiða sig á tækin til samskipta og náms. 1. minni hluti tekur fram að ekkert barn á að þurfa að koma með snjallsíma í einkaeigu í skólann. Skólinn á að útvega námstæki fyrir börnin. Það stendur meira að segja í lögum. Þannig að börn sem reiða sig á þetta sökum fötlunar — skólinn þarf að útvega þessi tæki eða þá styrk til kaupa þeirra tækja. Það er ekki þannig að barn komi í skólann og þurfi að bjarga sér sjálft, að ef það þarf á einhverjum tækjum að halda sökum einhvers konar fötlunar þurfi það að útvega þau sjálft. Skólar eiga að útvega öll tæki sem nemendur þurfa við nám sitt.

Snjallsímar eru ekki lausn hvað félagslega einangrun barna varðar. Það eru oft rök að börn þurfi símana af því að þau séu svo félagslega einangruð en það að demba þeim enn frekar inn í einhvern rafrænan heim á barnsaldri er akkúrat röng nálgun. Það þarf að vinna með þessa félagsfærni frá fyrstu stundu sem verður vart við hana þannig að barnið brjótist út úr því. Það þarf skólinn í samráði við velferðarþjónustu og foreldra að sjálfsögðu að vinna með. Annað er bara firring ábyrgðar. Sjálfur hef ég raunverulega séð það hjá börnum sem hafa átt í erfiðleikum félagslega að það hefur verið svona auðveld lausn að rétta því snjalltæki, rafræna snuddu, því að þá þagnar barnið. Það er vanræksla, hrein vanræksla. Við getum ekki — auðvitað eru til einhver öfgatilfelli þar sem við getum gert undanþágu og reglur eru ekki alltaf algildar en við erum að starfa í anda reglnanna, þannig að það sé sagt líka. Þessi félagsþáttur er alvarlegur og hann er almennur og ég held að samhliða því að við verðum með þessa reglugerð sem kemur hér um snjallsímann og snjalltækin þurfum við alvarlega að huga að því að fullorðna fólkið í skólasamfélaginu aðstoði sum börnin með þau fráhvarfseinkenni sem munu birtast. Mörg börn hafa alist upp við snjallsímanotkun frá því að þau fæddust og hafa getað haft símann í seilingarfjarlægð allt sitt líf. Það getur orðið mjög stórt stökk fyrir þessi börn að síminn sé ekki með á skólatíma. En ég er 99% viss um það að námsárangur allra skóla mun hækka verulega ef það verður eitthvert vit í reglugerðinni.

Fyrsti minni hluti tekur fram að reglugerðinni er ekki ætlað að útiloka kennslufræðileg snjalltæki úr skólastarfi. Við erum ekki að útiloka skjái úr skólastarfi heldur er markmið reglugerðarinnar að tryggja jafnræði milli skóla, styrkja skólastjórnendur, faglegt skólastarf og frístundastarf og stuðla að jákvæðu og öruggu skólaumhverfi þar sem börn geta einbeitt sér að námi, þroskast og styrkt félagsleg samskipti. Stór partur af því að vera í skóla er að styrkja félagsleg samskipti, alveg eins og í leikskóla. Þar eru krakkar í alls konar baráttu við jafningja um leikföng og þau fá högg í hausinn ef þau hegða sér ekki félagslega rétt og læra af því. Það sama á við um grunnskólann. Við erum búin að taka þennan þátt, sérstaklega úr unglingadeildunum. Það eru allt of fáir nemendur sem eru sterkir í félagslegum samskiptum því að það er svo auðvelt að hverfa inn í símann og sitja einhvers staðar einangraður. Þetta þekkjum við bara sjálf. Þegar ég horfi yfir salinn hér sé ég fimm fulltrúa, og þetta er sagt í smá léttúð, og þrír þeirra eru í símanum. Ég ætla bara að hrósa tveimur hérna, Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur og Grími Grímssyni, fyrir að vera ekki í símanum. Ég er orðinn eins og skólastjóri hér í pontu. Já, og Víðir var — nei, þetta er hið háa Alþingi, við skulum hætta þessu. (Gripið fram í.) En við þekkjum það öll að þegar við setjumst einhvers staðar og erum komin meðal almennings þá förum við beint í símann, hvort sem það er í strætó eða á biðstofum. Í stað þess, og nú er ég að horfa til baka og segi eins og Miðflokkurinn, sem var í gamla góða daga þegar við settumst á biðstofuna og auðvitað töluðum við við alla í kringum okkur. Það er kannski ekki rétt með alla en það voru meiri líkur á því að við ættum í einhverjum félagslegum samskiptum, ættum augnsamband og líkamstjáningu. Félagsfærni er áunnin, hún gerist ekki sjálfkrafa. Það er þjálfun og ekkert annað, þannig að þetta skiptir miklu máli.

Tíminn líður og ég er aðeins að reyna að átta mig á hvert ég er kominn hér í þessu. Hér er talað um umsögn Barnaheilla og fræðsluna, sem 1. minni hluti telur vera grundvallarforsendu fyrir því að tryggja heilbrigða og örugga notkun barna og ungmenna á snjallsímum og snjalltækjum. Þessi reglugerð getur líka hjálpað til heima við, sem skiptir miklu máli. Foreldrar verða að átta sig á því að þó að við getum sett snjallsímafrí á skólana þá þarf líka að taka á málunum heima. Það þarf að auka fræðslu og forvarnir. Svo kemur hér mjög mikilvægur þáttur sem 1. minni hluti nefnir og það er að áður en reglugerð um snjallsíma og snjalltæki í grunnskólum verður kláruð — áður, alveg eins og með að útbúa skólana með einhverri afþreyingu — þarf að fara í almenna og mikla fræðslu um það hvers vegna snjallsímar eiga ekki heima í grunnskólum, þannig að nemendur skilji það. Nemendur eru ekki kjánar, þeir skilja rök, þeir skilja það að ef þeir ná árangri í námi þá hækka árstekjur um 9% fyrir hvert menntað gott ár. Þannig að ef menn nýta námið í stað þess að eyða stórum tíma í einhvers konar truflun af símtækinu, sem oft er — og þannig að það sé bara sagt hér þá skoðaði ég það oft í mínu nærumhverfi í unglingaskóla og nemendur voru að fá 10–50 skilaboð í hverri einustu kennslustund. Það eru kannski rúmlega ein skilaboð á mínútu sem er töluvert mikil truflun. Mennta- og barnamálaráðuneytið á að fara í mikla almenna fræðslu um það hvers vegna snjallsímar eiga ekki heima í grunnskólum á skólatíma nema í þar til gerðum geymslum. Það ætti að leggja áherslu á þá truflun sem snjallsímar valda ef þeir eru innan seilingar og hvaða áhrif sú truflun hefur á námsárangur og ekki síður á það sem íslensk þjóð kallar eftir: aga. Það skiptir miklu máli. Snjallsímar í skólum hafa skapað lítinn aga. Það er ótrúleg freisting ef þú ert með símann á hljóðstillingu í vasa, í tösku, frammi í skáp, þar sem þú getur náð í hann, og þú veist af skilaboðum að rétta upp hönd og spyrja: Má ég fara á klósettið? Þetta þekkja held ég flestir kennarar, sérstaklega þeir sem hafa kennt á unglingastigi. Það var frelsun fyrir þann sem hér stendur að vera skólastjóri í eitt ár í yngri barna skóla, í 1.–7. bekk, þar sem engin hefð var fyrir því að snjallsímar kæmu með í skólann. Börn í 7. bekk þurftu ekki á snjallsímum að halda í þeim skóla en svo þegar þau komu í 8. bekk voru 99% þeirra með síma. En það var ótrúleg frelsun fyrir þann sem hér stendur að komast inn í það afslappaða og rólega skólaumhverfi þar sem símarnir léku ekki of stórt hlutverk. Fræðsla á náttúrlega að fjalla um félagsfærni og mikilvægi félagsfærni fyrir framtíðarlífsgæði allra. Sá sem er félagsfær og getur rekist í hópi er miklu líklegri til að fá ótal tækifæri upp í hendurnar sökum þess að hann er eftirsóttur einstaklingur í samskiptum. Sá sem er lítið félagsfær, dregur sig til baka, getur ekki komið skoðunum sínum og viðhorfum á framfæri, er mun ólíklegri til þess og verður þá af tækifærum.

Svo er þáttur hér sem mér finnst vanta í meirihlutaálitið og það er eftirfylgd. Við þekkjum það í íslensku menntakerfi að einn af akkilesarhælum þess er að fylgja því eftir sem við erum að reyna að innleiða. Ef við erum ekki með mjög ákafa eftirfylgd, sem við verðum að gera einhverja ábyrga fyrir — það þýðir ekki að segja bara eins og með aðalnámskrá grunnskóla, að skólarnir beri ábyrgð á því, því að hvað gerðist? 0% kennara, 0% skólastjóra, 0% nemenda og 0% foreldra töluðu um að aðalnámskrá grunnskóla hefði verið almennilega innleidd. 0% í öllum hópum. Þannig að eftirfylgdin skiptir miklu máli og það þarf líka að gera einhverja ábyrga fyrir henni. Það þýðir ekki að segja bara að hún verði að vera einhvern veginn. Það eru sveitarfélögin sem eru í þessu minnihlutaáliti gerð ábyrg fyrir eftirfylgdinni og eftirfylgdin þarf að vera að einhverju leyti samræmd. Við þurfum að vera með efni svo að við dembum þessu ekki bara á kennarana og segjum: Þið eigið að fylgja þessu eftir með einhverjum hætti. Það þarf að vera tilbúið einhvers konar efni fyrir starfsmennina til að geta nýtt sér. Þegar reglugerðin gengur í gildi þarf pakkinn að vera tilbúinn fyrir skólana svo að skólarnir séu ekki allir að útfæra einhverja hluti hingað og þangað, að við leggjum ekki enn meiri þyngsli inn í kennslustofuna og kennararnir þurfi að útfæra þetta hver og einn, heldur þurfum við sem stjórnvöld að vera búin að útbúa þetta almennilega. Þess vegna þurfa lögin að segja þetta, þannig að reglugerðin komist ekki upp með það að byggja ekki á lögunum. Og það er mikilvægt að eftirfylgdin sé samræmd. Þetta er risamál. Þetta er stórt mál. Þetta er skref og ef við ætlum að stíga það almennilega þurfum við að gera þetta vel.

Svo það sé sagt kom allt sem ég er að segja hér auðvitað fram í nefndinni með einhverjum hætti en ég var mjög seinn með þetta álit okkar þannig að meiri hlutinn er ekki búinn að rýna það og við erum ekki búin að ræða það okkar á milli. Ég veit að meiri hlutinn er sammála mörgu því sem ég er að segja, sumu kannski ekki, en það er alla vega þannig að ég ætla ekki að demba því á meiri hlutann að hann sé óferjandi og óalandi. Hann er reyndar sérstaklega góður í samvinnu.

En þannig að ég ljúki þessu bara hér þá telur 1. minni hluti ljóst að um sé að ræða verkefni sem þarf ávallt að byggja á samvinnu heimila og skóla auk þess að snerta ýmis svið og marga aðila. Þó má ekki gleyma því að um skyldunám er að ræða. Við megum ekki gleyma því að þetta er skyldunám, það eru fangelsi og grunnskóli sem eru skylda, og við þurfum að skapa öllum eins jöfn tækifæri og hægt er. Þeir skólar þar sem símar verða ekki í seilingarfjarlægð, ég ætla að fullyrða það sem skólamaður til 30 ára, munu skapa betri tækifæri heldur en skólar þar sem símar eru í seilingarfjarlægð, og það er ekki jafnræði að mínu mati. (Forseti hringir.)

Hér er breytingartillaga, herra forseti: 1. minni hluti leggur til breytingu á fyrirsögn frumvarpsins. Telur hann að réttara sé að kveðið verði á um snjallsíma í stað síma. Það er vegna þess að við viljum frekar beina sjónum okkar að smáforritunum í snjallsímanum en að símanum sem tæki, það er ekki þar sem vandinn liggur, og líka þar sem upplýsingarnar liggja.