157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:15]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka framsögumanni 1. minni hluta en líka framsögumanni meiri hlutans fyrir þeirra ræður. Það er þannig, þegar maður er búinn að hlusta á báðar ræður, að það er ljóst að það er bitamunur en ekki fjár á því sem við erum að fjalla um hér. Kannski, eins og hv. þingmaður kom inn á áðan, er það álag sem er í nefndinni og sá fjöldi mála sem við erum með og fjöldi gesta í þeim málum sem við erum með þess valdandi að stundum náum við ekki að ræða málið nógu mikið og komast kannski að sameiginlegri niðurstöðu með nefndarálit eins og ég hefði haldið að væri hægt í þessu tilfelli, það munar ekki miklu.

Mig langar kannski að hafa það sem spurningu í fyrra andsvari, hvort hann telji ekki að við hefðum getað náð þessu. Það muni kannski einhverjum áherslum sem liggi kannski bara í því hver skýrleiki reglugerðarinnar þarf að vera. Ég ætla að vera almennilegur við herra forseta sem gaf mér tvær mínútur og láta þetta duga í fyrra andsvari.