grunnskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Víði Reynissyni fyrir andsvar sitt og tek undir það að jú, það er kannski málafjöldinn í nefndinni og það að sá sem hér stendur þyrfti að vera aðeins skipulagðari, ég viðurkenni það, en formaður nefndarinnar, Víðir Reynisson, er mjög skipulagður og vinnur hratt og örugglega. Það er samt sem áður mikill málafjöldi og ég held að nefndarálit meiri hlutans hefði orðið aðeins öðruvísi hefðum við náð að ræða þetta aðeins betur því ég tel bara, eins og ég sagði í upphafi, að við verðum að setja ráðuneytinu miklu meiri ramma en er í meirihlutaálitinu, það er alla vega mitt mat, til þess að vilji löggjafans komi að einhverju leyti fram. Við sem löggjafi berum ábyrgð á því sem kemur fram í reglugerðinni, við getum ekki sagt: Þetta var bara opinn tékki og við vissum ekkert hvað kom síðan fram í reglugerðinni.
Ég segi því já við spurningunni frá hv. þm. Víði Reynissyni.