157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:17]
Horfa

Víðir Reynisson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í mínu seinna andsvari langar mig að beina athyglinni að breytingartillögunni en langar kannski fyrst að segja hversu mikil upplifun var fyrir nefndina þegar við fengum ungmennin til okkar, Ungheill. Þau fóru fram á það að við settum öll farsímann okkar í geymslu og værum símalaus meðan á fundinum stóð og þetta var okkur bara aðeins erfitt, held ég. Ég held við höfum öll verið aðeins óróleg meðan á þessu stóð. En þarna voru nemendurnir að sýna okkur hvað fyrirmyndirnar geta skipt miklu máli.

Í þessu seinna andsvari langar mig aðeins að velta fyrir mér breytingartillögunni þar sem er sem sagt talað um að breyta þessu úr „símar og snjalltæki“ í „snjallsímar og snjalltæki“. Ég er með þessa vangaveltu — símar, farsímar, snjallsímar, snjalltæki, spjaldtölvur og hér á eftir erum við að fara að tala um frumvarp þar sem orðið fartæki kemur fram, þar sem er verið að tala um þessi tæki sem við tökum með okkur, hvort sem það eru fartölvur, spjaldtölvur eða hvað eina. Ég velti fyrir mér hvort sími sé ekki betra svona alhliðaorð. Ég veit hvað hv. þingmaður er að tala um varðandi smáforritin en ég velti fyrir mér hvort við séum ekki að búa til einhverja þrengingu sem er óþarfi í þessu.