grunnskólar.
Herra forseti. Stutta svarið er: Ég held að við séum ekki að búa til þrengingu. Ég held að við séum að ávarpa í raun það sem við erum að reyna að gera með því að nota orðið snjallsími, því að það er alveg þekkt í umræðunni að menn tala um að það sé ekki síminn, það eru smáforritin í símanum. Með orðinu snjallsími — auðvitað er það þannig að kynslóðirnar sem eru á miðjum aldri, ungum miðjum aldri, auðvitað man ég eftir gráu skífusímunum frá Ericsson. Svo komu farsímar sem var hægt að fara í svona létta tölvuleiki. Svo komu snjallsímar sem eru í raun bara tölvur sem við vorum að nota. Mér finnst fókusinn vera á snjallsíma. Mér finnst sími sem slíkur — það er kannski bara orðalagið en mér finnst sími og snjallsími ekki vera það sama. En þetta er ekki stóra málið í þessu öllu saman.