157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:20]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir hans ræðu og hans álit og þeirra minnihlutaálit. Já, ég held að þetta hefði getað orðið eitt allsherjarálit, algerlega. En það sem mig langar aðeins að nefna varðandi undirbúninginn, varðandi það að undirbúa krakkana, er að ég held að þau séu búin að komast í gegnum erfiðustu fráhvörfin. Í ljósi þess að allir skólar eru komnir með einhvers konar reglur — við vitum ekki nákvæmlega hvernig þær eru, en ég geri ráð fyrir að þau séu jafnvel ekki með símana inni í kennslustofu — hef ég ekki miklar áhyggjur af því að það verði svo mikið sjokk þegar þessi reglugerð kemur að þau fari í svokölluð fráhvörf.

En mig langaði kannski aðeins að koma að því sem hv. þingmaður var að tala um varðandi snjallsíma versus síma. Spurningin er kannski þessi: Vill þingmaðurinn þá leyfa síma? Ef ekki er um snjallsíma að ræða, mega þau börn sem eru bara með gamaldags síma, sem hægt er að hringja úr og hringja í en ekki með neinum forritum og ekki með netinu — mætti barnið þá hafa slíkan síma með sér inn í skólastofuna? Það er kannski þetta sem ég var aðeins að hugsa um.