grunnskólar.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir sitt andsvar. Fyrst skal nefna að 97% skóla, að mig minnir, eru búnir að skapa sér einhvers konar reglur í kringum símanotkun í skólanum, snjallsímanotkun. En þar sem ég er mikill efasemdarmaður um alls konar hluti þá athugaði ég margoft hversu vel slíkar reglur dygðu. Ég bað nemendur mína um að hringja í vini sína í hinum og þessum skólum. Það var aldrei sem ekki var svarað í símann í símalausum skólum. Símarnir voru í seilingarfjarlægð. Þetta voru fleiri, fleiri símtöl sem ég bað nemendur mína um að hringja. Stundum var bara svarað með einhverjum textaskilaboðum en svo stuttu seinna var hringt. Eftirvæntingin eftir því að heyra hvað væri í gangi í Réttarholtsskóla — nemendur fengu að fara á klósettið og hringdu svo. Ég fékk oft að tala við þessa nemendur í hinum og þessum skólum og við höfðum gaman af. Auðvitað eru til nemendur sem fara eftir reglunum, sérstaklega til að byrja með og kannski áfram. En það fer fljótt að kvarnast úr þeim hópi og þegar einhver einn er kominn með síma og er farinn að gera eitthvað voða fyndið þá er mjög líklegt að þróunin verði á þann veg að fleiri fari að mæta með síma. Í sumum skólum hefur þetta örugglega gengið 100% eða kannski 95%, ég get ekkert fullyrt um það hér í ræðustól, en það er aðeins misjafnt. Mínar stuttu athuganir, sem ég gerði í 2–3 ár þegar ég heyrði af nýjum símalausum skólum; ég hringdi í nokkur skipti — já, ég fæ að svara seinna.
(Forseti (BergÓ): Hv. þingmaður vissi upp á sig skömmina þarna en það gerði forseti sömuleiðis.)