157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:24]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir) (Flf) (andsvar):

Forseti. Ég þakka fyrir svarið. Já, ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta er í skólunum núna. Það getur vel verið að mikil þróun hafi orðið í vetur og nú sé þetta bara í mjög góðu fari. En ég er mjög ánægð að heyra hvað hv. þingmaður er í raun sammála okkur í meiri hlutanum um mikilvægi þessarar reglugerðar upp á það einmitt að tryggja jafnræði. Hugmyndin um skápana er bara mjög góð. Auðvitað kostar þetta allt aukalega og maður er að horfa í hverja krónu en ef það þætti henta væri það bara frábært. En ég vil líka taka undir það sem hv. þingmaður var að tala um varðandi eftirfylgni. Ég tek heils hugar undir mikilvægi þess og okkur yfirsást svolítið það atriði. En það þarf að fylgja þessu eftir og ákveða hver ber ábyrgðina, hver mun gera það; það var bara virkilega góður punktur og ég vil þakka fyrir það.