grunnskólar.
Herra forseti. Ég vil þakka fyrir seinna andsvar. Eftirfylgni skiptir öllu máli og það er það sem er oft erfiðast í öllum svona málum. En ég er nokkuð viss um mikilvægi þess að börnin og ungmennin sjálf fái í raun eins góðar upplýsingar og hægt er um það hversu miklu máli það skiptir félagslega og námslega, og hvað fleiri þætti varðar, að nýta þann tíma sem þau eru skyldug til að vera í skólanum vel; hversu mikið þau geta grætt á því að vera í skóla hvað varðar lífsgæði og efnahag inn í framtíðina. Við gerum okkur oft ekki grein fyrir því hve skólinn er góður staður fyrir ungmenni. Þar hitta þau fullorðið fólk sem er menntað til þess að ausa úr viskubrunni sínum og hjálpa þeim og styðja til þroska og færni. Það skiptir ofboðslega miklu máli að sá tími fari ekki til spillis og að þau séu ekki trufluð.
Frú forseti, ég fæ enn meiri tíma, ég er hér á einhvers konar sérsamningi við forseta.
(Forseti (KÁB): Forseti gleymdi að stilla þetta. Tíminn er búinn.)