157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:27]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu og framsögu. Spurningarnar hafa svolítið komið fram um orðalagið, síma í stað snjallsíma, og spurningin mín er þá: Hvað um takkasíma? Má vera í Snake? Eins og hv. þingmaður nefndi áðan, það eru alls konar — hvar ætlum við að gera greinarmun á því? Krakkarnir komast hjá alls konar reglum og reyna að finna alls konar leiðir til þess. En seinni spurningin mín er í rauninni um framkvæmdina, að geyma símana. Hv. þingmaður talaði áðan um kostnað og samræmingu milli skóla ef allir þyrftu að vera með eins geymslu, í 700 barna skólum t.d. Hvernig sér hv. þingmaður fyrir sér framkvæmdina í gríðarlega stórum skólum? Þarf aukastarfsmann bara til þess að vakta stóru skápana sem þar eru? Ég held kannski áfram í mínu seinna andsvari.