157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:29]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Forseti. Kærar þakkir fyrir þetta. Ég nefndi 700 barna skóla og ég er með frekar nærtækt dæmi þar sem ég er með barn í 7. bekk og á miðstigi og í mörgum skólum eru símahótel þar sem börnin geyma símana. Ég held að ég geti sagt að ég sé bara ósammála hv. þingmanni um að þetta sé bara vandamál á efsta stigi því að vandamálin eru komin alveg niður á miðstig. Við sjáum börn þar sem eru með síma og ég myndi halda að væri eðlilegast, þó að skólarnir geti útfært sínar símareglur, að við þyrftum að taka þetta heilt yfir allt skólastigið.

Ef ég tala um skóla í mínu kjördæmi, Sunnulækjarskóla, sem er mjög stór skóli sem ég kenndi áður við, þá eru þar u.þ.b. 700 börn. Þannig að það þarf svolítið að huga að framkvæmdinni. Ég sé ekki alveg fyrir mér hvernig hún væri. Þá er kannski spurning mín núna: Sér hv. þingmaður fyrir sér að við getum útvegað frekar svona símahótel þar sem krakkarnir á efsta stigi komi með símana inn í kennslustund og taki þá í lok kennslustundar? (Forseti hringir.) Hvers vegna ekki? Ég spyr upp á framkvæmdina í stórum skólum þar sem eru kannski 400 börn á efsta stigi og miðstigi.