grunnskólar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Söndru Sigurðardóttur aftur fyrir gott andsvar. Ég er nokkuð viss um að það sé hægt að koma svona skápum upp á frekar auðveldan hátt. Sjálfur hef ég verið í skóla með 560 unglingum og þau eru með stóra skápa hvert og eitt, það eru 560 skápar í skólanum. Litlir skápar kæmust auðveldlega fyrir eða lítil hólf sem hægt væri að renna símanum inn í, það þarf ekki að taka mikið pláss. Að hinu, með símahótelin, þá eru börnin með símana í frímínútum. Það er ákveðinn þáttur skólastarfsins þar sem félagsfærnin þarf að fá að dafna án þess að það séu símar í kringum börnin í frímínútum og matarhléi. Það er held ég almennt, þegar krakkar eru spurðir um það, þegar þau losna við að síminn sé nálægt þeim og líf þeirra er ekki lengur nokkurn veginn í beinni útsendingu, þá er það frelsi, þetta segja held ég meira og minna allir krakkar. Þannig að ég er ekki sammála því að símahótelin dugi vegna þess að ég held að okkur veiti ekkert af aukinni félagsfærni.