157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:34]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir svarið við andsvari mínu. Ég vona bara að það geti orðið sem mest um þetta. Ég held að íþróttastarf sé að mörgu leyti grundvöllur fyrir því að margir krakkar sætti sig við að vera ekki með símann. Ég held að þetta skipti verulegu máli. En jafnframt getur það verið þannig að í einhverju alrými sé aðgangur að borðtennisborðum eða píluspjöldum eða þess háttar. Ég fann það á krökkunum sem komu til okkar, komu fyrir nefndina, að þau töluðu um þetta, að það hefði kannski komið eitthvert svona tæki en svo hefði það horfið stuttu síðar. Það væri áhugavert að reyna að keyra svolítið á þetta. Það sem mig langar til að spyrja hv. þingmann um núna varðandi símana — hann leggur til í sínu áliti, og þeir hv. þingmenn sem standa að minnihlutaálitinu, að breyta um orðalag. Myndi snjallsími ekki falla undir það að vera snjalltæki þannig að símar og snjalltæki séu víðari nálgun en snjallsímar og snjalltæki?