grunnskólar.
Forseti. Mig langar að þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu hér. Ég held að við séum ekki sammála en ég hlakka til að eiga umræður um þetta mál. Hv. þingmaður var svo sem meira að gagnrýna ríkisstjórnina og að ekkert sé verið að gera í menntamálum en að ræða efnislega um frumvarpið sem liggur hér fyrir. Ég hefði frekar viljað sjá hv. þingmann ræða efnislega um málið en hún talaði um að það hafi verið samráðsleysi. Ég veit ekki betur en að hæstv. ráðherra hafi haft gott samráð um þetta og talað við mjög marga hagaðila um þetta mál. Það komu margir fyrir nefndina með mjög góð sjónarhorn.
Hv. þingmaður nefnir reglur og samræmingu. Fólkið sem er í kringum mig kallar eftir samræmingu og börnin sem komu fyrir nefndina í gestakomum töluðu einmitt sérstaklega um að það þyrfti að vera samræming milli skóla þannig að þetta sé svipað milli skóla, hvort sem það er, eins og við töluðum um áðan, samræming yfir allt skólastigið eða hvort það ætti að taka elsta stigið sér eða miðstigið með. Ég fagna þessu mjög og við þurfum að setja einhvern ramma. Við sjáum að börnin eru of mikið í símanum og það þarf einhvern veginn að setja ramma utan um þetta. Við erum að ræða í dag með hvaða hætti það verður gert og hæstv. ráðherra kemur síðan með útfærslu á því.
Spurningin mín í lokin er: Telur hv. þingmaður að það þurfi ekki samræmingu á þessu þvert yfir grunnskólastigið og milli skóla landsins? Telur þingmaðurinn það vera óþarfi?