157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:53]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Hv. þingmaður talaði um samráð og ef það hefur misskilist í ræðu minni þá var ég að hrósa fyrir samráð hér. Ég var kannski ekki nógu skýr og kannski ekki nógu algengt að fólk heyri mig hrósa. En ég segi: Hér er eitt af fáum málum sem hefur verið haft samráð um og talað mikið um samráð. Þegar hæstv. ráðherra mælti fyrir málinu þá sagði hann að hann myndi ekki skrifa neinar reglugerðir nema að fara í samráð og hlusta á alla hagaðila og ég er ánægð með það þegar samráð er haft. Þannig að það er ekki vandamál.

Hv. þingmaður segir að það sem við séum að ræða hér sé með hvaða hætti eigi að gera þetta. Það er kannski grunngagnrýni mín að þetta frumvarp sem hér liggur undir fjallar með engum hætti um það hvernig eigi að gera þetta. Það eina sem stendur í þessu frumvarpi er að skrifa inn í kafla er varðar reglugerðir að ráðherra geti líka sett reglugerðir um notkun síma og snjalltækja. Ég held reyndar að það sé bara óþarft. Ég held í alvöru að ef ráðherra myndi vilja gera reglugerð um það þá gæti hann gert það án þess að þetta frumvarp færi í gegn. Látum það liggja milli hluta, en ég held það. Í ljósi þess að ráðherra velur þó að koma hingað inn í þingið með slíkt frumvarp um að fá að gera reglugerð þá hefði ég kosið og þá hefði mér fundist eðlilegra að ráðherrann hefði komið með drög að þessari reglugerð svo við gætum einmitt verið að segja með hvaða hætti á að gera þetta, en það vantar alveg hér.

Hv. þingmaður ræddi líka skólastigin og það getur verið munur milli skólastiganna. Þess vegna spurði ég að því hér í andsvörum áðan: Var eitthvað rætt um framhaldsskólastigið? Ég heyri það frá kennurum á framhaldsskólastigi að þeir finni verulega fyrir símum og truflun þeirra. Munum það, (Forseti hringir.) virðulegur forseti, að framhaldsskólinn er á forræði hæstv. ráðherra. Sveitarstjórnir eru ekki að velta fyrir sér reglum um símanotkun í framhaldsskólum en það eru þær að gera eða hafa þegar gert hvað grunnskólann varðar.