157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:55]
Horfa

Sandra Sigurðardóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Hv. þingmaður kom einmitt inn á þann punkt sem ég ætlaði að koma að í mínu seinna andsvari með framhaldsskólastigið en ég held að ég sé búin að fá svarið hvað það varðar. Eru 16 ára kríli, ef við getum orðað það svo, sem eru að stíga sín fyrstu skref í framhaldsskólum, tilbúin og treysta þau sér til að vera með síma í vasanum og sinna náminu sínu sem skyldi án þess að vera í símanum? Þannig að spurningin mín átti að vera samræming milli skóla, skólastiga, þvert á skólastig, framhaldsskóli, grunnskóli. Er það eitthvað sem hv. þingmaður myndi vilja sjá í þessari framkvæmd? Og ég vil aftur hnykkja á þessu: Telur hv. þingmaður samræmingu á milli skóla, ólíkra skóla, óþarfa og hver eru þá rökin fyrir því að það séu sitt hvorar reglur milli skóla?