157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

grunnskólar.

232. mál
[16:56]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Ég náði ekki að svara spurningu hennar í fyrra andsvari varðandi það hvort ég teldi ekki þörf á samræmingu milli skóla. Eiginlega er svarið mitt nei. Ég veit það alveg og ég heyri að einhverjir hafa talað fyrir því. Ég tel það ekki mikið vandamál hvort reglurnar í Kópavogi séu með þessum hætti, í Reykjavík með þessum hætti og á Akureyri með einhverjum öðrum hætti. Við skulum muna að grunnskólinn er á forræði sveitarfélaganna og það er margt ólíkt í grunnskólunum milli sveitarfélaga. Það getur verið ólíkt milli skóla hvaða valfög er boðið upp á eða hvernig kennslu er háttað, hversu langar kennslustundirnar eru. Það eru alls konar hlutir sem eru mismunandi milli skóla og milli sveitarfélaga þannig að í mínum huga er það ekki stórkostlegt vandamál þó að reglurnar eða útfærslur reglna, sáttmála eða hvað það er séu ekki samræmdar milli sveitarfélaganna. Í mínum huga er það ekki stórvandamál. Ef ég væri spurð að því hvað ég myndi telja eða gera sem menntamálaráðherra þá held ég að það sé ágætishugmynd sem uppi var að leyfa starfshópnum að klára og koma með einhverjar leiðbeiningar sem sveitarfélögin gætu tekið til sín, miðla þeim leiðum sem gengið hafa vel og auðvelda þannig sveitarfélögunum að fara í þetta verkefni ef þau eru að einhverju leyti ekki búin að því.

Síðan held ég að það væri full ástæða til að skoða framhaldsskólana og ég er kannski ekki endilega bara að hugsa um síma og reglur þar að lútandi. Ég held að það sé meira vandamál að það sé einhvers konar agaleysi. Mér finnst að kennari eigi bara að ráða svolítið í sinni kennslustofu og að hann eigi ekki að þurfa að verða fyrir því að það sé truflun af hendi einhverra tækja. Mér finnst í rauninni að það eigi að vera mjög einfalt mál. Ég heyri frá kennurum að það sé síður en svo einfalt mál og það að gera upptæka síma og annað sé mjög flókið. Þess vegna hefði ég hvatt hæstv. ráðherra áfram í því og ég hefði gert það sjálf að fara að skoða stöðuna í framhaldsskólanum vegna þess að það skólastig heyrir beint undir menntamálaráðherra. Til þess að bæta við, vegna þess að við erum að tala um síma og snjalltæki, þá held ég að það sé líka ástæða til að ræða samfélagsmiðla og aldurstakmark þar inn. (Forseti hringir.) Ég held að það séu raunhæfari verkefni og viðfangsefni sem við ættum að fara að horfa til vegna þess að ég tel að sveitarfélögin (Forseti hringir.) og skólarnir séu svolítið búnir að sinna því að setja reglur í kringum síma í skólum.