157. löggjafarþing — 74. fundur,  19. feb. 2026.

aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila.

264. mál
[16:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta allsh.- og menntmn. (Grímur Grímsson) (V):

Frú forseti. Ég mæli fyrir hönd meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila. Frumvarpinu er ætlað að innleiða í landsrétt ákvæði tilskipunar ESB, Evrópusambandsins, um aðgengi vefsetra opinberra aðila og smáforrita þeirra fyrir fartæki. Markmið tilskipunarinnar er að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, með því að gera þau skynjanleg, nothæf, skiljanleg og traust.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Gögn málsins eru aðgengileg undir málinu á vef Alþingis.

Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar árétta sérstaklega: Í umsögnum sem bárust nefndinni lýstu umsagnaraðilar almennt yfir ánægju með og stuðningi við innleiðingu tilskipunarinnar og markmið frumvarpsins. Talið var að frumvarpið væri lykilskref í átt að raunverulegu jafnrétti á sviði stafrænnar stjórnsýslu. Fram komu þó nokkrar ábendingar, svo sem um gildissvið frumvarpsins. Bent var á að þrátt fyrir að tilskipunin, sem frumvarpið innleiðir taki eingöngu til opinberra aðila, þá kvæðu alþjóðlegar skuldbindingar, svo sem aðrar Evróputilskipanir og sáttmáli Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, á um að einkaaðilum bæri einnig að tryggja aðgengi og taka mið af þörfum fatlaðs fólks. Þá var einnig sérstaklega bent á undanþágu frumvarpsins sem veitt er vefsetrum útvarpsrekenda í almannaþágu, þar sem talið var að gera ætti sömu kröfu til Ríkisútvarpsins og gerðar eru til annarra vefsetra opinberra aðila.

Þessu tengdu bendir meiri hlutinn á að við innleiðingu ESB-gerða skuli frumvörp að meginstefnu aðeins fela í sér þær breytingar sem nauðsynlegar eru til að endurspegla þá EES-skuldbindingu sem við á. Í greinargerð frumvarpsins kemur einnig fram að sú undanþága sem gildi um útvarpsrekendur í almannaþágu sé ekki ákvörðun íslenskra stjórnvalda, heldur kemur hún beint fram í 1. gr. tilskipunarinnar sjálfrar. Rökstuðningur tilskipunarinnar er sá að tryggja þurfi nauðsynlega samkeppnisstöðu við einkarekna miðla og því sé eðlilegra að fjalla um það í sérstakri fjölmiðlalöggjöf.

Þá fjallaði nefndin um skilgreiningu á opinberum aðilum samkvæmt 1. tölulið 3. gr. frumvarpsins, en við skýringu ákvæðisins í greinargerð kemur fram að skilgreiningin sé í samræmi við orðskýringu sem fram kemur í lögum um opinber innkaup. Þá kemur fram í 2. tölulið 2. mgr. 2. gr. að lögin gilda ekki um vefsetur og smáforrit fyrir fartæki á vegum frjálsra félagasamtaka nema þau veiti þjónustu sem er nauðsynleg almenningi eða þjónustu sem beinist sérstaklega að þörfum fatlaðs fólks. Meiri hlutinn bendir á í því sambandi að samkvæmt lögum um opinber innkaup, sem skilgreining á opinberum aðila í þessu lagafrumvarpi vísar til, geta frjáls félagasamtök talist opinberir aðilar sé starfsemi þeirra rekin á kostnað opinberra aðila, þ.e. ef opinber fjármögnun nemur meira en 50% af árlegum rekstrarkostnaði. Nefndin fjallaði að auki um ábendingu Sambands íslenskra sveitarfélaga um að ráðherra hefði heimildir til að leggja dagsektir á opinbera aðila sem ekki sinna fyrirmælum stjórnvalda í samræmi við kröfur frumvarpsins en þau leggja til að kveðið verði á um tiltekna hámarksfjárhæð dagsekta. Sambandið benti einnig á stuttan innleiðingartíma, sérstaklega með tilliti til þess að rekstraraðilar skóla og leikskóla séu í mörgum tilvikum háðir þjónustu einkaaðila sem þurfi að aðlaga eigin kerfi að nýjum kröfum, sem getur tekið tíma.

Meiri hlutinn bendir á það sem fram kemur í greinargerð um að það sé á ábyrgð þess sem veitir þjónustu að tryggja að hún uppfylli skilyrði laga, óháð því við hvaða birgja er skipt. Í frumvarpinu er einnig sérstakt ákvæði í 5. gr. sem fjallar um óhóflega byrði, sem er sérstaklega ætlað að mæta aðstæðum minni aðila og koma í veg fyrir ósanngjarnar kröfur. Meiri hlutinn hefur skilning á sjónarmiðum umsagnaraðila en undirstrikar markmið frumvarpsins um að tryggja að vefsetur og smáforrit fyrir fyrirtæki á vegum opinberra aðila séu aðgengileg öllum, einkum fötluðu fólki, og meiri hlutinn telur mikilvægt að það nái fram að ganga. Meiri hlutinn undirstrikar að um innleiðingu á tilskipun er að ræða til hagsbóta fyrir almenning og viðkvæma hópa, en telur ekki rétt að útvíkka úrræðið frá því sem þegar er lagt til með frumvarpinu.

Forseti. Vík ég nú að breytingum sem meiri hluti hv. allsherjar- og menntamálanefndar leggur til að gerðar verði á frumvarpinu. Meiri hluti nefndarinnar leggur til breytingar á gildistökuákvæði frumvarpsins, með hliðsjón af ábendingum umsagnaraðila, sem áður var að vikið, um stuttan innleiðingartíma. Þrátt fyrir að gæta þurfi að innleiðingartíma bendir meiri hlutinn á mikilvægi þess að tryggja tímanlega innleiðingu tilskipunarinnar og að markmið frumvarpsins um aðgengi nái fram að ganga sem fyrst, til hagsbóta fyrir þá aðila sem þurfa á bættu aðgengi að halda og á það einkum við um fatlað fólk. Aðlögunartími verður því að vera í hófi með tilliti til þeirra hagsmuna sem markmið frumvarpsins taka til, sem og þeirra sem þurfa svigrúm til að mæta kröfum frumvarpsins. Líkt og fram kemur í greinargerð er í reynd verið að útfæra réttindi og skyldur sem þegar eru til staðar í íslenskum rétti.

Meiri hlutinn leggur til að lögin öðlist þegar gildi en leggur jafnframt til rýmri aðlögunartíma en þegar er gert ráð fyrir í frumvarpinu fyrir opinbera aðila til að uppfylla kröfur laganna, sem komi til framkvæmda í áföngum. Þá eru lagðar til minni háttar orðalagsbreytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.

Vísast að öðru leyti til ítarlegri umfjöllunar um breytingartillögur í áliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar.

Frú forseti. Að framansögðu virtu leggur meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.

Undir álit meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar rita, auk þess sem hér stendur, hv. þingmenn Víðir Reynisson, Guðmundur Ari Sigurjónsson, Kolbrún Áslaugar Benediktsdóttir og Sandra Sigurðardóttir.

Frú forseti. Mig langar að lesa hér í lokin úr greinargerðinni sem varðar bæði tilefni og nauðsyn lagasetningar og síðan meginefni frumvarpsins. Í fyrstu málsgrein kaflans sem ber yfirheitið Tilefni og nauðsyn lagasetningar í nútímasamfélagi, segir, með leyfi forseta:

„ Í nútímasamfélagi er sívaxandi hluti samskipta og þjónustu hins opinbera við almenning stafrænn. Aðgengi að upplýsingum og þjónustu á vefsetrum og í smáforritum fyrir fartæki er orðið mikilvægur grundvöllur fyrir virkri þátttöku í samfélaginu. Skortur á samræmdum, lögboðnum kröfum um aðgengi getur leitt til þess að stafræn þjónusta hins opinbera uppfylli ekki alltaf þarfir allra notendahópa.“

Í kafla um meginefni frumvarpsins segir svo, með leyfi forseta:

„Við undirbúning frumvarpsins var ákveðið að setja frumvarpið fram sem rammalöggjöf. Þetta þýðir að meginreglur, svo sem markmið, gildissvið og grundvallarskyldur opinberra aðila, verði festar í lög. Nánari útfærsla á tæknilegum kröfum, afmörkun á undanþágum og framkvæmd eftirlits er aftur á móti falin ráðherra sem setur um það reglugerð á grundvelli heimildar í lögunum, verði frumvarpið samþykkt.

Með þessari aðferð er ætlunin m.a. að tryggja svigrúm til að bregðast við hraðri tækniþróun á sviði stafrænnar þjónustu. Tæknilegir staðlar, svo sem Evrópustaðallinn EN 301 549, taka reglulegum breytingum.“

Frú forseti. Með þessu hef ég lokið máli mínu.