varamenn taka þingsæti.
Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Viðreisnar um að Eiríkur Björn Björgvinsson geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Degi B. Eggertssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni um að þeir verði fjarverandi frá þingstörfum á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi sem varaþingmenn fyrir þá 2. varamaður á lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi, Valdimar Breiðfjörð Birgisson, en 1. varamaður á lista hefur boðað forföll, 1. varamaður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, Anna María Jónsdóttir, og 1. varamaður á lista Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi, Jóhann Friðrik Friðriksson.
Valdimar Breiðfjörð Birgisson, Anna María Jónsdóttir og Jóhann Friðrik Friðriksson hafa áður tekið sæti á Alþingi og eru boðin velkomin til starfa að nýju.