niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Frú forseti. Að undanförnu höfum við séð óvenjumörg dæmi um að nefndarstörf séu að ganga úr skorðum í þinginu, iðulega með þeim hætti að ruðst er áfram með ófullbúin og varasöm mál og hefðum og venjum í þingstörfum ekki sinnt, svo mikið liggur á að koma málunum gölluðum alla leið. Hér er um að ræða sérstaklega varhugavert mál sem snýr að því að selja í raun vegabréfsáritanir til Íslands sem víðast. Við þekkjum vandann sem við höfum staðið frammi fyrir við að verja landamæri landsins. Þessi áform hafa verið gagnrýnd mjög afdráttarlaust af mörgum gestum sem komið hafa fyrir hv. utanríkismálanefnd og í umsögnum til nefndarinnar. Engu að síður er ákveðið að virða þá gagnrýni að vettugi, nota ekki þau tækifæri sem eru til að laga málið sem skyldi. Og ég sé, frú forseti, að utanríkisráðuneytið er byrjað að auglýsa (Forseti hringir.) eftir starfsmönnum í það verkefni sem þingið er ekki búið að samþykkja.