157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.

[15:18]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að taka undir með kollegum mínum, hv. þingmönnum. Það er alveg ótrúlega miður og hryggir mig hvernig er komið fyrir starfsandanum í hv. utanríkismálanefnd sem mig langar til þess að fullyrða að sé hreinlega í hættu. Þar eru farin að viðgangast vinnubrögð og viðhorf til hv. þingmanna sem eiga ekki að líðast hér á þingi. Mig langar til þess að fylla upp í það sem hv. þm. Jóhann Friðrik Friðriksson rakti hér í pontu áðan, að í síðustu viku barst beiðni frá hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni um gestakomur í kjölfar gestakoma og breytinga og umræðu um viðkomandi mál. Þeirri beiðni var ekki bara ekki svarað heldur barst í kjölfarið bara nefndarálit og tillaga um afgreiðslu málsins. Beiðni og tillögu hv. þingmanns var hreinlega ekki svarað. Hún var algerlega virt að vettugi. Þetta eru vinnubrögð, viðhorf og virðingarleysi gagnvart hv. þingmönnum sem við eigum ekki að líða.