157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.

[15:19]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S):

Virðulegi forseti. Það er dapurlegt að þurfa að taka þessa umræðu hér aftur og aftur. Þessi ríkisstjórnarmeirihluti er öðruvísi en þeir ríkisstjórnarmeirihlutar sem hafa verið áður að því leytinu til, virðulegi forseti [Hlátur í þingsal.] — já, nú hlæja stjórnarliðar — að þeir virða ekki þær hefðir og venjur sem skapast hér á hinu hv. Alþingi og hv. þingmenn stjórnarliðsins hlæja að því. Hví skyldi það vera að fram til þessa hefur þótt fullkomlega sjálfsagt og eðlilegt og merki um góð vinnubrögð að menn svari spurningum, hleypi að umsagnaraðilum og leiti svara við spurningum sem upp koma? Hvers vegna á að halda í það, virðulegi forseti, að sú venja hafi verið hér til staðar þangað til að þessi ríkisstjórn kom? Virðulegi forseti. Það er til að vanda til verka. (Forseti hringir.) Þetta á virðulegi forseti að þekkja betur en aðrir. Ég hvet virðulegan forseta til að grípa inn í. Við sjáum það öll að þessi vinnubrögð eru ekki líðandi og þau hafa það eitt í för með sér (Forseti hringir.) að við getum ekki vandað til verka.