niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Virðulegur forseti. Hér er á ferðinni grafalvarlegt mál þegar grannt er skoðað. Það er kannski enn alvarlegra þegar þetta er rætt undir liðnum fundarstjórn forseta að þá skuli hv. stjórnarþingmenn vera hér flissandi í þingsal þegar gagnrýnd eru þessi vinnubrögð sem ég vil taka undir með þeim sem segja að eigi sér ekki fordæmi hér. Það hefur oft þekkst í þingstörfum, virðulegur forseti, og þetta veit ég að hæstv. forseti þekkir sjálf af sinni löngu reynslu á þingi, að það hefur verið reynt að boða og biðja um gesti úr hinum og þessum áttum inn í ákveðin þingmál til að reyna að draga mál á langinn. Við því er brugðist með því að lengja fundartíma, hafa fleiri en einn gest á hverjum fundi o.s.frv. Svona vinnubrögð hins vegar, að hafna gestakomum sem oft og tíðum eru jafnvel opinberir aðilar sem leika lykilhlutverk gagnvart þeim frumvörpum eða öðrum málum (Forseti hringir.) sem eru undir í nefndunum, er ekki boðlegt, virðulegur forseti. Forseti verður að grípa inn í af því að þetta er grundvallaratriði í þingstörfum okkar. Þetta er grundvallaratriði í lýðræðislegum vinnubrögðum.