niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Virðulegur forseti. Ég finn mig knúna, á þessari stundu þar sem verið er að ræða vinnubrögð og vísa til atburða sem áttu sér stað síðast í morgun, til að lýsa yfir vonbrigðum með eitt gríðarlega stórt mál sem við í hv. velferðarnefnd erum með til meðferðar og síðast núna í morgun sem varðar almannatryggingar og tengingu við launavísitölu. Við þekkjum hvað það mál er að valda miklum misskilningi í samfélaginu og hvað það er ótrúlega misjafn skilningur sem virtir hagfræðingar hafa, nú síðast Seðlabanki Íslands sem fyrir helgi kom með umsögn sína. Í morgun var því samt hafnað að fleiri kæmu til á milli umræðna til að ræða þetta mál og ræða stöðuna. Við erum í rauninni að færa málið aftur inn í 3. umræðu þegar það er á því stigi að það ætti að vera á byrjunarreit miðað við hve gríðarlega misjafnan skilning aðilar eru að leggja í það. Okkur var formlega hafnað þegar við óskuðum eftir því að Samtök atvinnulífsins kæmu, (Forseti hringir.) sem hafa beðið um að fá að koma aftur fyrir nefndina vegna stærðar þess og umræðna sem hafa átt sér stað, en því var hafnað formlega.