157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.

[15:24]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Af því að við erum að ræða hér fundarstjórn forseta þá langar mig fyrst til að nefna það að auðvitað er mikilvægt að við séum með lokaða nefndafundi, einmitt þannig að hv. þingmenn geti talað saman og reynt að koma saman og sætta sjónarmið og átt bara opið og hreinskiptið samtal. Hins vegar er mikilvægt að við tökum síðan ákveðna umræðu í þingsal til að upplýsa almenning um það sem þar gerist ef það er að tefja fyrir þingstörfum. Þess vegna langar mig enn og aftur, af því að ég hef komið hér áður upp, að óska eftir liðsinni virðulegs forseta. Ég óska eftir því að hún beiti sér fyrir því að það verði betri vinnubrögð og viðhorf í nefndunum þannig að við séum ekki að standa í vegi fyrir framgangi og vinnu í þinginu og á þingfundum, eins og er einmitt að gerast núna þegar óánægja með nefndarstörf, vinnubrögð og viðhorf. Og skortur á hæfni í mannlegum samskiptum, langar mig að segja, smitast hérna inn í þingsal.