niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Frú forseti. Ég verð að taka undir með ágætum kollegum mínum hvað varðar vinnubrögðin í þessu máli sem eru því miður, eins og í allt of mörgum málum, ófagleg. Hér er til meðferðar mál sem hefur sýnilega mikla þýðingu og getur varðað öryggi á landamærunum. Okkur í allsherjar- og menntamálanefnd var falið að veita umsögn um málið og fjalla um minnisblöð dómsmálaráðuneytisins og undirstofnana þess. En svo bregður við í störfum nefndarinnar að okkur er meinað um gestakomur, meinað að fá fulltrúa Útlendingastofnunar, ríkislögreglustjóra og raunar líka utanríkisráðuneytisins til að koma og útskýra út á hvað þetta mál gengur. Það sætir algerri furðu og það er ekki hlutverk okkar sem erum í minni hlutanum að gefa svona sýndarsamráði einhverja ásýnd trúverðugleika. Ég finn að þessum vinnubrögðum og vona að forseti taki þau upp.