niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Virðulegi forseti. Enn og aftur verðum við vitni að því að af því að við náum ekki að leysa mál í nefndum með einföldu samtali og einföldu samkomulagi erum við í raun að tefja mál. Við erum í rauninni að tefja málin af því þau dragast hingað inn. Oft og tíðum verður þetta hér hatrömm umræða sem ég ætla að leyfa mér að segja geri lítið annað en að skemmta skrattanum og sýnir okkur kannski ekki í því ljósi sem við viljum sjást. Af hverju getum við ekki leyst þessi mál í nefndum? Er ekki rétt, frú forseti, að þú boðir einfaldlega bara nefndarformann til fundar og farir yfir það með nefndarformönnum hvernig væri skynsamlegt að leysa þessi mál þannig að við ættum samtal inni í nefndunum? Aldrei nokkurn tímann hafa svona vandamál komið upp í umhverfis- og samgöngunefnd þar sem við störfum. Við erum þó búin að skipta um formann. Það er ekkert vandamál ef fólk talar saman og er lausnamiðað í svona málum. Af hverju ekki að láta það eftir stjórnarandstöðunni (Forseti hringir.) að fá gesti eða taka einhverjar umræður? Ég sé ekki að við viljum fá þetta hingað inn, frú forseti.