niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Virðulegur forseti. Ég vil koma hingað upp og taka undir með hv. þm. Ólafi Adolfssyni og hvetja aðra formenn í nefndum Alþingis til að taka sér til fyrirmyndar þau vinnubrögð sem hafa verið viðhöfð í umhverfis- og samgöngunefnd þingsins, bæði undir fyrrverandi formanni, hv. fyrrverandi þingmanni Guðbrandi Einarssyni, og svo núverandi þingmanni. Þar er brugðist jákvætt við öllum beiðnum um umsagnaraðila, frumkvæðismál og allt eftir því. Höfum við einhvern tímann séð menn koma hér upp í ágreiningi að tala um vinnubrögð í nefndinni? Nei, síður en svo, þveröfugt. Það hefur gengið vel undan nefndinni og hún hefur skilað sínum málum hér, auðvitað með breytingartillögum minni hluta og annað. Það er ekki þar með sagt að við þurfum alltaf að vera sammála.
Virðulegur forseti. Þetta eru hins vegar vinnubrögð sem ætti að taka til fyrirmyndar og í rauninni er afkastageta nefndarinnar mun meiri heldur en í þeim nefndum, sérstaklega tveimur nefndum þingsins, þar sem hafa verið viðhöfð akkúrat (Forseti hringir.) öfug vinnubrögð, allt er í ágreiningi, allt er í stoppi og endalausum ágreiningi.