157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.

[15:35]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Það er vont að heyra af þessu máli, að ekki sé orðið við beiðnum um að fá gesti. Eins og hæstv. forseti þekkir þá er það hlutverk okkar í stjórnarandstöðunni að veita aðhald og fylgjast með og þegar synjað er um gestakomur er það aðhald skert. Við í allsherjar- og menntamálanefnd áttum að gefa umsögn um málið án þess að hafa fengið nokkrar upplýsingar um málið. Það minnti bara svona á einhvers konar stimpilpúðavinnubrögð, sem er með ólíkindum. Ég bara hvet nefndarformenn sem eru ekki góðir í samskiptum til að fara á námskeið hjá þeim nefndarformönnum þar sem þetta gengur vel, t.d. í allsherjar- og menntamálanefnd. Það er hægt að stjórna þessu almennt vel. Við erum fólk, við erum ekki í endalausu rifrildi. Það er bara hæfni í mannlegum samskiptum og að keyra ekki mál hér áfram í algerri ósátt.