niðurstaða fundar utanríkismálanefndar.
Frú forseti. Ég má til með að halda áfram þessari umræðu, sem ég tel vera grafalvarlega, og fjalla þá í seinni ræðu minni um fundarstjórn hér um vinnubrögðin í velferðarnefnd um launavísitölumál ríkisstjórnarinnar þar sem meiri hluti nefndarinnar hafnar því að Seðlabankinn mæti á fund nefndarinnar og útskýri gagnrýni sína sem birtist í minnisblaði sem nefndinni barst fyrir ekki svo löngu. Þetta sætir algerri furðu. Hvert er efnahagsstjórn landsins komin? Óttast hún að fá fulltrúa Seðlabankans á fund nefndarinnar til að fjalla um þau mál sem við erum hér með til umfjöllunar? Ég vek athygli á því í því sambandi að hæstv. forsætisráðherra gagnrýndi einmitt síðustu ríkisstjórn fyrir að sofa á verðinum og eftirláta Seðlabankanum einum þessa baráttu gegn verðbólgunni, en stendur svo fyrir því að Seðlabankinn fái ekki einu sinni að koma á fund þingnefndar til að fjalla um risamál.