157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

aðhald í ríkisfjármálum.

[15:45]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Mig langar, ef mér leyfist hérna í upphafi, að þakka forseta fyrir falleg minningarorð í upphafi þingfundar og ég vildi bara nýta tækifærið hérna til að votta aðstandendum Davíðs Oddssonar og samstarfsfólki, sem ég veit að margt hvert er hér inni, innilega samúð mína.

Hvað varðar fyrirspurn hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur, formanns Sjálfstæðisflokksins, þá er ég auðvitað ekki sátt við þessar mælingar sem eru núna að detta í hús. Ég fundaði í morgun ásamt formönnum flokkanna í þessari ríkisstjórn með aðilum vinnumarkaðarins. Við vorum með fund þjóðhagsráðs og vissulega eru áhyggjur af þeirri stöðu sem er uppi núna. Ég held að allir taki þetta alvarlega. Mér dettur ekki í hug að kenna öðrum um en mér dettur heldur ekki í hug að láta eins og ríkið sé eini aðilinn sem geti náð verðbólgunni niður. Það mun þurfa samstillt átak. Það mun þurfa aðhald á sviði ríkisfjármála sem er sannarlega það sem við erum að vinna að. Undirliggjandi hagþróun gerir það auðvitað erfiðara en það þýðir bara að við þurfum að passa enn þá betur upp á stöðu ríkisfjármálanna og það er það sem við munum kynna til sögunnar núna í fjármálaáætlun, óháð þessari undirliggjandi þróun. Ég er hins vegar líka meðvituð um að það er ekki ríkið sem semur um kaup og kjör á markaði þegar kemur t.d. að kjarasamningum. Það er heldur ekki ríkið sem tekur ákvarðanir um verðlag þegar kemur að fyrirtækjunum eða setur fram launakröfur. Þetta eru allt þættir sem þurfa að vinnast saman. En ég veit að allir finna til ábyrgðar og þrátt fyrir að þetta séu flóknar aðstæður sem við finnum okkur í er ég vongóð. Verðbólgan mun fara niður. Það mun þurfa samstillt átak til þess og ríkisstjórnin mun sannarlega veita það akkeri sem þarf með því að vera með styrka stjórn á ríkisfjármálum.