157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

aðhald í ríkisfjármálum.

[15:47]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Á sama tíma og ríkisstjórnin boðar aðgerðir einhvern tímann í einhverri framtíð vegna verðbólgu og versnandi stöðu heimila og fyrirtækja virðist samt athygli ríkisstjórnarinnar vera annars staðar. Utanríkisráðherra segir að verið sé að leggja lokahönd á þingsályktunartillögu um aðild að Evrópusambandinu og forsætisráðherra hefur talað um þjóðaratkvæðagreiðslu á næstu mánuðum. Forsætisráðherra talar ekki um það hér í þinginu heldur á blaðamannafundum í útlöndum. Það er óboðlegt að þjóðin frétti af áformum ríkisstjórnarinnar á blaðamannafundum erlendis. Þetta er hagsmunamál af þeirri stærðargráðu að við verðum að ræða það hér heima á Alþingi og við fólkið í landinu af yfirvegun og sanngirni. Það er alger lágmarkskrafa. Stöðugleiki og lífskjör fást ekki keypt í lágvöruverðsverslunum í Brussel. (Forseti hringir.) Við þurfum að taka til heima og taka hagstjórnina föstum tökum. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvernig réttlætir hún þessa forgangsröðun ríkisstjórnarinnar að ýta ESB-málinu áfram á sama tíma og verðbólga situr föst, (Forseti hringir.) atvinnuleysi eykst og ríkisstjórnin hefur ekki enn lagt fram trúverðugt plan til að ná niður verðbólgu (Forseti hringir.) og verja lífskjör í þessu landi?