157. löggjafarþing — 75. fundur,  2. mars 2026.

aðhald í ríkisfjármálum.

[15:49]
Horfa

forsætisráðherra (Kristrún Frostadóttir) (Sf):

Frú forseti. Við vinnum enn þá að því að gera það sem við sögðumst ætla að gera í ríkisfjármálum. Fókusinn er ekkert farinn af því og það mun bara koma í ljós í næstu fjármálaáætlun, alveg eins og þetta er tekið mjög alvarlega á fundi þjóðhagsráðs. Það að spyrja þjóðina hvort hún vilji hafa þann valkost að sjá hvað gæti komið út úr aðildarviðræðum við Evrópusambandið — að láta eins og sú spurning setji allt á hliðina hérna finnst mér sérstakt. Þetta snýst um valkosti. Það er enginn að tala um að þetta sé nein töfralausn. Þetta er eitthvað sem hefur staðið til í langan tíma að gera. En ég verð að segja varðandi það að halda því fram að hér hafi fólk verið að tala við erlenda fjölmiðla en ekki þá innlendu að ég hef mætt í mörg viðtöl upp á síðkastið. Utanríkisráðherra hefur mætt í mörg viðtöl upp á síðkastið þar sem lá fyrir að það stæði til að leggja fram þingsályktunartillögu um þetta mál núna á allra næstu vikum. Það felur eðli málsins samkvæmt í sér að atkvæðagreiðslan er á næstu mánuðum því þannig virkar slík þingsályktunartillaga. Þetta eru ekki nýjar fréttir. Stjórnarandstaðan ætti að hætta að tala um þetta sem nýjar fréttir. Þetta er raunveruleikinn. Þetta er veruleikinn. Þetta var loforð þessarar ríkisstjórnar. (Forseti hringir.) Við erum að standa við það og það er þjóðarinnar að svara þessari spurningu.