aðgerðir í efnahagsmálum.
Frú forseti. Þar til nú í síðasta andsvari voru hæstv. forsætisráðherra auk hæstv. fjármálaráðherra einir um það að hafa ekki áhyggjur af þróun efnahagsmála á Íslandi. Nú segist hæstv. forsætisráðherra hafa áhyggjur en enn sem komið er berast engin svör um hvernig eigi að bregðast við. Til þessa hefur hæstv. ráðherra sagt: Við höldum okkur við planið. Þegar ég spurði hæstv. forsætisráðherra um það hér ekki alls fyrir löngu hvert planið væri lýsti ráðherrann nokkrum markmiðum, virtist hafa ruglast á áformum eða plani og markmiðum. En raunveruleikinn blasir við nú dag frá degi. Verðbólga gaf ekkert eftir í síðustu mælingu. Ég spurði hæstv. fjármálaráðherra hvort það væri hætta á kreppuverðbólgu hérna fyrir nokkru síðan. Hann taldi það fráleitt að láta sér detta í hug og spurði hvort ég ætti kristalskúlu. Í nýlegu viðtali sagði svo hæstv. fjármálaráðherra: Það er lengi búin að vera kreppuverðbólga á Íslandi.
Atvinnuleysi er hið mesta frá 2012. Varaseðlabankastjóri varar við áframhaldandi kólnun á vinnumarkaði. Hæstv. fjármálaráðherra er ekki einu sinni sammála sínu eigin ráðuneyti um vinnuletjandi frumvarp ríkisstjórnarinnar og í því máli sá seðlabankastjóri ástæðu til að minna ríkisstjórnina á mikilvægi þess að hægt væri að beita mannlegri dómgreind. Viðskiptablaðið segir frá því nú að í greiningu verðbréfafyrirtækisins ACRO er m.a. gert ráð fyrir aukinni skuldasöfnun vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar og aðgerðaleysis og hækkandi ávöxtunarkröfu á Ísland. Ríkisstjórnin er að gjaldfella Ísland með aðferðum sínum. Í stað þess að bregðast við og reyna að gera ástandið betra heldur ríkisstjórnin áfram að spilla því. Hæstv. forsætisráðherra mætti ekki til leiks með sleggju heldur með skóflu og er kominn ofan í holu en heldur áfram að grafa. Einlæg spurning mín til hæstv. forsætisráðherra er þessi: Hvað getum við gert til að hjálpa ykkur upp úr holunni?